1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 120/2009 frá 9. febrúar 2009 um breytingu á reglugerð (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði þeirra lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2009 frá 3. júlí 2009 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.
Reglugerð (EB) nr. 120/2009 fjallar að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.
2. gr.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2009 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 56, frá 22. október 2009, bls. 11, og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 120/2009 eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 30. nóvember 2009.
Árni Páll Árnason.
Ágúst Þór Sigurðsson.
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)