Félags- og tryggingamálaráðuneyti

1194/2008

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 939/2003 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutendra bóta og vistunarframlags frá Tryggingastofnun ríkisins. - Brottfallin

1. gr.

Í stað "99.319 kr." í 5. mgr. 11. gr. kemur: 115.567 kr. á mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr., sbr. 70. gr., laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, 2. mgr. 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, og 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica