1. gr.
Í stað orðanna "annarra en sumarhúsa og útihúsa í sveitum" í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: annarra en sumarhúsa, útihúsa í sveitum og mannvirkja og lóða sem falla undir 3. gr. reglugerðar um fasteignaskatt, nr. 1160/2005.
2. gr.
Tilvísunin "nr. 945/2000" í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
3. gr.
2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Upplýsingum um breytingar á skrá Fasteignamats ríkisins, sbr. 1. mgr., skal skilað á eyðublöðum sem Jöfnunarsjóður lætur sveitarfélögum í té. Á þeim skal tilgreina eftirfarandi atriði:
4. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:
Þrátt fyrir ákvæði 11. gr. reglugerðar um fasteignaskatt, nr. 1160/2005, skal ekki taka tillit til nýrra lóða og nýrra mannvirkja sem skráð eru og metin í Landskrá fasteigna eftir 1. janúar 2006 við útreikning framlaga samkvæmt reglugerð þessari fyrir árið 2006.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 5. maí 2006.
Jón Kristjánsson.
Guðjón Bragason.