Félags- og húsnæðismálaráðuneyti

935/2025

Um vinnumarkaðsúrræði. REGLUGERÐ um vinnumarkaðsúrræði.

I. KAFLI Gildissvið og markmið.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsúrræðum sem og um greiðslu styrkja vegna þátttöku þeirra í vinnumarkaðsúrræðum.

2. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsúrræðum og auka tækifæri fólks með mismikla starfsgetu til virkni á vinnumarkaði.

II. KAFLI Vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur sem tryggðir eru
samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar.

3. gr. Ráðning með styrk.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við atvinnurekanda um ráðningu atvinnuleitanda, sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, enda telst ráðningin vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að taka þátt í þeirri starfsþjálfun sem honum ber á grundvelli samningsins. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk skv. 2. eða 3. mgr. til hlutaðeigandi atvinnurekanda. Þá skuldbindur hlutaðeigandi atvinnurekandi sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Markmiðið er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að þjálfa sig í störfum innan þeirrar starfsgreinar sem atvinnurekandinn starfar til að auka hæfni sína til slíkra starfa á vinnumarkaði.

Hafi viðkomandi atvinnuleitandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í sex mánuði eða lengur þegar samningur skv. 1. mgr. er gerður er Vinnumálastofnun heimilt, á grundvelli samningsins, að greiða hlutaðeigandi atvinnurekanda styrk í allt að sex mánuði sem nemur fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda sem og 11,5% mótframlag af styrkfjárhæðinni í lífeyrissjóð.

Hafi viðkomandi atvinnuleitandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en í sex mánuði samtals þegar samningur skv. 1. mgr. er gerður er Vinnumálastofnun heimilt, á grundvelli samningsins, að greiða hlutaðeigandi atvinnurekanda styrk í allt að sex mánuði sem nemur 50% af fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda sem og 11,5% mótframlag af styrkfjárhæðinni í lífeyrissjóð.

Óheimilt er að framlengja gildistíma samnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnuleitandinn hafi skerta starfsgetu og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er þá heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki.

Skilyrði fyrir greiðslu styrks til atvinnurekanda á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið í virkri atvinnuleit og skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í a.m.k. þrjá mánuði eftir atvinnumissi,
  2. að starfið verði talið líklegt til að veita atvinnuleitandanum framtíðarstarf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar,
  3. að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi atvinnurekanda og að viðkomandi atvinnuleitandi hafi ekki sinnt sama starfi hjá atvinnu­rekandanum á síðastliðnum 12 mánuðum,
  4. að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi a.m.k. einn starfsmann á launaskrá áður en til ráðn­ingar viðkomandi atvinnuleitanda kemur og
  5. að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi síðastliðna sex mánuði ekki sagt starfsmönnum upp störfum sem gegnt höfðu því starfi sem fyrirhugað er að ráða viðkomandi atvinnuleitanda til að gegna.

Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi atvinnurekanda og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks til hlutaðeigandi atvinnurekanda samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutaðeigandi atvinnurekanda til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr.

Vinnumálastofnun er heimilt að víkja frá a-lið 5. mgr. þegar atvinnuleysi á landsvísu er hærra en 6,5% eða það starf sem um ræðir er staðsett á landshluta þar sem atvinnuleysi er hærra en 6,5%.

Hlutaðeigandi atvinnurekandi skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr., eftir því sem þörf krefur.

Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr. auk þess sem gildistími samnings skv. 1. mgr. telst ekki til þess tímabils sem heimilt er að greiða viðkomandi atvinnuleitanda atvinnuleysisbætur skv. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

4. gr. Námssamningur.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem er tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, enda ekki talið líklegt að viðkomandi atvinnuleitanda verði boðið starf á gildistíma samningsins að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Ákvæði þetta á ekki við um nám á háskólastigi og nám á framhaldsskólastigi, sbr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að stunda starfstengt nám sem hann hefur valið sér í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar eftir að færni hans og staða hefur verið metin. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.

Skilyrði fyrir námssamningi skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið þátttakandi á innlendum vinnumarkaði síðustu 12 mánuði áður en hann óskar eftir námssamningi skv. 1. mgr. en við mat á atvinnuþátttöku atvinnuleitanda er heimilt að taka tillit til þess tíma sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur,
  2. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi verið í virkri atvinnuleit og skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í a.m.k. þrjá mánuði eftir atvinnumissi áður en hann óskar eftir samningi skv. 1. mgr.
  3. að námið sé viðurkennt sem vinnumarkaðsúrræði, sbr. d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnu­markaðs­aðgerðir, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, sbr. einnig reglugerð nr. 917/2020, um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði,
  4. að námið kunni að nýtast viðkomandi atvinnuleitanda við atvinnuleit að námi loknu að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og
  5. að námið sé ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Á gildistíma námssamnings skv. 1. mgr. skal viðkomandi atvinnuleitandi uppfylla skilyrði um mætingu sem og önnur skilyrði sem sett eru í tengslum við námið af hlutaðeigandi skóla, svo sem hvað varðar reglulega ástundun námsins. Auk þess ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma námssamnings skv. 1. mgr. Viðkomandi atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit á gildistíma námssamnings skv. 1. mgr. og vera reiðubúinn að taka starfi sem honum kann að bjóðast á gildistímanum.

Gildistími námssamnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið ein námsönn. Heimilt er að framlengja gildistíma námssamnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda enda hafi hann sýnt viðunandi námsárangur að mati hlutaðeigandi skóla og uppfyllt þau skilyrði sem sett eru í tengslum við námið.

5. gr. Styrkur til atvinnuleitanda vegna þátttöku í starfstengdu námi eða námskeiði.

Vinnumálastofnun er heimilt að greiða styrk til atvinnuleitanda sem er tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar vegna þátttöku hans í starfstengdu námi eða námskeiði sem viðurkennt er sem vinnumarkaðsúrræði, sbr. a- eða d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, sbr. einnig reglugerð nr. 917/2020, um nám og námskeið sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði. Styrkurinn skal að hámarki nema 75% af námskeiðsgjaldi en skal þó aldrei vera hærri en 80.000 kr. á ári til atvinnuleitanda. Einungis er heimilt að veita atvinnuleitanda styrk einu sinni vegna sama náms eða námskeiðs.

Skilyrði fyrir veitingu styrks skv. 1. mgr. er að ráðgjafi Vinnumálastofnunar telji að líkur séu á að þátttaka viðkomandi atvinnuleitanda í hinu starfstengda námi eða námskeiði, eftir því sem við á, komi til með að nýtast atvinnuleitandanum við atvinnuleit.

6. gr. Verkþjálfun.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við sérstök verkþjálfunarsetur, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, um þátttöku atvinnuleitanda, sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, í verkþjálfun hjá hlutaðeigandi verkþjálfunarsetri, enda telst verkþjálfunin vinnumarkaðsúrræði skv. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að taka þátt í þeirri verkþjálfun sem honum ber á grundvelli samningsins sem og til að uppfylla kröfur um ástundun og mætingu. Þá skuldbindur hlutaðeigandi verkþjálfunarsetur sig með undirritun sinni til að sjá til þess að atvinnuleitandinn sé slysatryggður á meðan verkþjálfun varir. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.

Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið 12 mánuðir en óheimilt er að framlengja gildistíma samnings vegna sama atvinnuleitanda nema nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er þá einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki.

Hlutaðeigandi verkþjálfunarsetur skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr., eftir því sem þörf krefur. Jafnframt ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.

7. gr. Starfsendurhæfing.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan starfsendurhæfingarsamning við atvinnuleitanda, sem er tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, um starfsendurhæfingu skv. e- eða f-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Markmiðið með starfsendurhæfingarsamningi er að auka líkur á að viðkomandi atvinnuleitandi fái starf við hæfi á vinnumarkaði að lokinni starfsendurhæfingu. Skilyrði fyrir gerð samnings um starfsendurhæfingu er að viðkomandi atvinnuleitandi þurfi á slíkri starfsendurhæfingu að halda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og að gerð hafi verið endurhæfingaráætlun sem líkur eru á að nýtist atvinnuleitandanum við atvinnuleit. Með undirritun sinni skuldbindur atvinnuleitandi sig til að taka fullan þátt í endurhæfingaráætlun sem hann hefur gert í samvinnu við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og/eða aðra þjónustuaðila, eftir því sem við á, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.

Á gildistíma samnings skv. 1. mgr. ber viðkomandi atvinnuleitanda að vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og/eða aðra þjónustuaðila, eftir því sem við á. Ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr.

Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið þrír mánuðir. Óheimilt er að framlengja samning vegna sama atvinnuleitanda.

8. gr. Sjálfboðaliðastarf.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um þátttöku atvinnuleitanda, sem er tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, í sjálfboðaliðastarfi, þar með talin frjáls félagasamtök sem hafa milligöngu um sjálfboðaliðastörf í öðrum aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, enda telst sjálfboðaliðastarfið vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi sem hann hefur valið sér. Þá skuldbinda hlutaðeigandi félagasamtök sig með undirritun sinni til að sjá til þess að viðkomandi atvinnuleitandi sé slysatryggður við sjálfboðaliðastarfið. Á gildistíma samningsins fær viðkomandi atvinnuleitandi greiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar.

Hlutaðeigandi félagasamtök skulu tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr., eftir því sem þörf krefur. Viðkomandi atvinnuleitandi skal einnig vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr. Viðkomandi atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit á gildistíma samnings skv. 1. mgr. og vera reiðubúinn að taka starfi sem honum kann að bjóðast á gildistímanum.

Í þeim tilvikum þegar um er að ræða samning skv. 1. mgr. um sjálfboðaliðastarf atvinnuleitanda í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið gildir ákvæði um atvinnuleit í öðru aðildarríki samkvæmt VIII. kafla laga um atvinnuleysistryggingar og gefur Vinnumálastofnun út viðeigandi vottorð til staðfestingar á rétti viðkomandi atvinnuleitanda til atvinnuleysisbóta á gildistíma samningsins.

9. gr. Búferlastyrkir.

Vinnumálastofnun er heimilt að greiða sérstaka búferlastyrki vegna kostnaðar við búferlaflutning atvinnuleitanda sem er tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á. Í því sambandi er miðað við búferlaflutning innanlands frá því sveitarfélagi þar sem atvinnuleitandi hefur skráð lögheimili sitt til þess sveitarfélags þangað sem hann flytur lögheimilið í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum atvinnurekanda sem hefur sannanlega ráðið hann til starfa. Búferlastyrkur samkvæmt ákvæði þessu getur jafnframt náð til kostnaðar við flutning á búslóð viðkomandi atvinnuleitanda og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á.

Þrátt fyrir 1. mgr. eru búferlastyrkir ekki greiddir vegna kostnaðar við búferlaflutning atvinnuleitanda og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á, innan höfuðborgarsvæðisins.

Skilyrði búferlastyrks eru meðal annars:

  1. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi sannanlega verið ráðinn til starfa í öðru sveitarfélagi en því sem hann hefur skráð lögheimili sitt í og að hann geti ekki með auðveldum hætti sótt starfið frá lögheimili sínu,
  2. að viðkomandi atvinnuleitandi og fjölskylda hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á, hafi flutt lögheimili sitt til sveitarfélagsins þar sem hin nýja starfsstöð er, sbr. þó 2. mgr.,
  3. að starfið feli ekki í sér tímabundna ráðningu,
  4. að viðkomandi atvinnuleitandi eigi að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar ekki auðvelt með að fá starf í því sveitarfélagi þar sem hann hefur skráð lögheimili sitt,
  5. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi ekki áður fengið greiddan búferlastyrk á sama tímabili skv. 1. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og
  6. að viðkomandi atvinnuleitandi sýni fram á að hafa þegar lagt út fyrir kostnaði vegna búferla­flutninganna, svo sem með því að leggja fram kvittun fyrir greiðslu vegna leigu á stórri bifreið til flutninga, vegna kaupa á þjónustu á vegum flutningafyrirtækis hvort sem flutn­ingarnir fara fram á landi, á sjó eða í lofti eða vegna fargjalda fyrir sig og fjölskyldu sína, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á, með almennings­samgöngum hvort sem um er að ræða samgöngur á landi, á sjó eða í lofti.

Í sérstökum undantekningartilvikum er Vinnumálastofnun heimilt að greiða búferlastyrk án þess að öll skilyrði 3. mgr. séu uppfyllt enda hafi stofnunin metið aðstæður viðkomandi atvinnuleitanda heildstætt, sbr. þó 2. mgr.

Búferlastyrkur skal nema að hámarki 80% af kostnaði við búferlaflutning viðkomandi atvinnuleitanda og fjölskyldu hans, sem hefur skráð lögheimili á sama stað og hann, eftir því sem við á.

Þrátt fyrir 5. mgr. skal hámarksfjárhæð búferlastyrks aldrei vera hærri en sem nemur hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta.

III. KAFLI Vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur með skerta getu til virkni á vinnumarkaði.

10. gr. Styrkur vegna ráðningar atvinnuleitanda sem á rétt á örorkulífeyri.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við atvinnurekanda um ráðningu atvinnuleitanda sem á rétt á örorkulífeyri samkvæmt lögum um almannatryggingar. Markmiðið er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að þjálfa sig í störfum innan þeirrar starfsgreinar sem atvinnurekandinn starfar til að auka færni sína til atvinnuþátttöku. Með undirritun sinni skuldbindur hlutaðeigandi atvinnurekandi sig til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk skv. 2. mgr. til hlutaðeigandi atvinnurekanda. Hlutaðeigandi atvinnurekandi skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings eftir því sem þörf krefur.

Vinnumálastofnun er heimilt á grundvelli samnings skv. 1. mgr. að greiða styrk til hlutaðeigandi atvinnurekanda sem nemur 75% af föstum launum viðkomandi atvinnuleitanda í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi sem og 11,5% mótframlag af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð. Fjárhæð styrks skal þó aldrei vera hærri en sem nemur hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta.

Vinnumálastofnun er heimilt er að greiða styrk skv. 2. mgr. fyrstu tvö ár atvinnuleitanda í starfi. Að þeim tíma liðnum lækkar hlutfall styrksins um 10% með 12 mánaða millibili þar til 25% lágmarksendurgreiðsluhlutfalli er náð. Vinnumálastofnun er þó heimilt að miða tímabundið við 50% lágmarksendurgreiðsluhlutfall ef geta atvinnuleitanda til virkni á vinnumarkaði hefur að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar minnkað á gildistíma samnings skv. 1. mgr.

Skilyrði fyrir greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að viðkomandi atvinnuleitandi eigi rétt á örorkulífeyri samkvæmt lögum um almanna­tryggingar,
  2. að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi atvinnurekanda og
  3. að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi a.m.k. einn starfsmann á launaskrá áður en til ráðn­ingar viðkomandi atvinnuleitanda kemur.

Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi atvinnurekanda og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks til hlutaðeigandi atvinnurekanda samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutaðeigandi atvinnurekanda til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr.

Í sérstökum tilfellum er Vinnumálastofnun heimilt að greiða styrk skv. 4. mgr. 12. gr. samhliða samningi skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda.

11. gr. Styrkur vegna ráðningar atvinnuleitanda sem á rétt á hlutaörorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við atvinnurekanda um ráðningu atvinnuleitanda sem á rétt á hlutaörorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum samkvæmt lögum um almannatryggingar. Markmiðið er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að þjálfa sig í störfum innan þeirrar starfsgreinar sem atvinnurekandinn starfar til að auka færni sína til atvinnuþátttöku. Með undirritun sinni skuldbindur hlutaðeigandi atvinnurekandi sig til að greiða viðkomandi atvinnuleitanda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Jafnframt skuldbindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk skv. 2. mgr. til hlutaðeigandi atvinnurekanda. Hlutaðeigandi atvinnurekandi skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings eftir því sem þörf krefur.

Vinnumálastofnun er heimilt á grundvelli samnings skv. 1. mgr. að greiða styrk til hlutaðeigandi atvinnurekanda sem nemur fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda sem og 11,5% mótframlag af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð.

Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur verið allt að 12 mánuðir. Þrátt fyrir framangreint er heimilt að framlengja gildistíma samnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda ef nauðsynlegt er að veita atvinnuleitandanum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar en í slíkum tilvikum er þó einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings um sex mánuði að hámarki.

Skilyrði fyrir greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að viðkomandi atvinnuleitandi eigi rétt á hlutaörorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingar­greiðslum samkvæmt lögum um almannatryggingar,
  2. að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi atvinnurekanda og
  3. að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi a.m.k. einn starfsmann á launaskrá áður en til ráðningar viðkomandi atvinnuleitanda kemur.

Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi atvinnurekanda og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks til hlutaðeigandi atvinnurekanda samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutaðeigandi atvinnurekanda til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings skv. 1. mgr.

Í sérstökum tilfellum er Vinnumálastofnun heimilt að greiða styrk skv. 4. mgr. 12. gr. samhliða samningi skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda.

12. gr. Vinnustaðaþjálfun.

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við atvinnurekanda um vinnustaðaþjálfun atvinnuleitanda sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar eða á rétt á örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum samkvæmt lögum um almannatryggingar, enda telst þjálfunin vinnumarkaðsúrræði skv. b- eða d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnuleitandi sig til að sinna þeim störfum sem honum eru falin á grundvelli samningsins undir leiðsögn og með stuðningi leiðbeinanda á vinnustaðnum. Þá skuldbindur hlutaðeigandi atvinnurekandi sig með undirritun sinni til að sjá til þess að atvinnuleitandinn sé slysatryggður við störf sín sem og til að veita Vinnumálastofnun umsögn við lok gildistíma samnings um þjálfun viðkomandi atvinnuleitanda hjá atvinnurekandanum. Markmið samningsins er að viðkomandi atvinnuleitandi fái tækifæri til að þjálfa sig fyrir frekari þátttöku á vinnumarkaði.

Skilyrði fyrir samningi skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi skerta starfsgetu og nauðsynlegt sé að veita honum tækifæri til þjálfunar á vinnustað að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar fyrir þátttöku hans á vinnumarkaði,
  2. að þörf sé á leiðsögn og stuðningi við atvinnuleitanda í tengslum við þátttöku hans á vinnu­markaði,
  3. að hætta sé á langtíma óvirkni atvinnuleitanda eða að atvinnuleitandi hefur þegar verið frá vinnumarkaði í langan tíma og
  4. að líkur séu á að þjálfunin nýtist atvinnuleitanda við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumála­stofnunar.

Gildistími samnings skv. 1. mgr. getur að hámarki verið þrír mánuðir og er óheimilt að framlengja gildistíma samningsins vegna sama atvinnuleitanda.

Hlutaðeigandi atvinnurekandi skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera leiðbeinandi viðkomandi atvinnuleitanda á vinnustaðnum auk þess sem tengiliðurinn skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr., eftir því sem þörf krefur. Vinnumálastofnun er heimilt að greiða hlutaðeigandi atvinnurekanda allt að 60.000 kr. styrk á mánuði sem hluta af umbun atvinnurekandans til viðkomandi tengiliðs fyrir störf hans í tengslum við samning skv. 1. mgr. Viðkomandi atvinnuleitandi skal einnig vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr.

Samningur skv. 1. mgr. hefur ekki áhrif á greiðslu atvinnuleysisbóta eða virknistyrks og ekki er gerð krafa um að viðkomandi atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit á gildistíma samningsins.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

13. gr. Umsókn.

Atvinnuleitendur og atvinnurekendur skulu sækja um gerð samninga samkvæmt reglugerð þessari til Vinnumálastofnunar.

Með atvinnurekendum er átt við fyrirtæki, stofnanir og einnig frjáls félagasamtök. Með frjálsum félagasamtökum er í þessu sambandi átt við félagasamtök sem starfa að góðgerðar- og/eða mannúðarmálum í þágu almannahagsmuna og eru ekki rekin í hagnaðarskyni auk þess að vera undanþegin skattskyldu skv. 4. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Umsókn skv. 1. mgr. skal vera skrifleg og henni skulu fylgja nauðsynleg fylgigögn eftir því sem við á hverju sinni, svo sem lýsing á því vinnumarkaðsúrræði sem um ræðir, lýsing á starfi, og vinnutilhögun, vottorð um námsþátttöku, frumrit reikninga vegna kostnaðar, upplýsingar um laun og önnur starfskjör atvinnuleitanda eða vottorð um þátttöku atvinnuleitanda í námi eða námskeiði. Vinnumálastofnun er heimilt að óska eftir staðfestingu atvinnurekanda á því að atvinnuleitandi sé slysatryggður við störf sín á gildistíma samnings þegar ástæða er til að mati ráðgjafa stofnunarinnar.

Vinnumálastofnun er heimilt að óska eftir umsögn frá öðrum aðilum en um getur í 2. mgr. vegna einstakra umsókna um gerð samnings samkvæmt reglugerð þessari þegar ástæða er til að mati ráðgjafa stofnunarinnar.

14. gr. Sérstök skilyrði.

Vinnumálastofnun er óheimilt að gera samning á grundvelli reglugerðar þessarar við atvinnurekendur sem ekki eru í skilum hvað varðar launatengd gjöld og opinber gjöld, svo sem iðgjöld og mótframlag í lífeyrissjóð, stéttarfélagsgjöld og tryggingagjald. Samningur sem gerður hefur verið á grundvelli reglugerðar þessarar við atvinnurekendur fellur úr gildi komi til þess á gildistíma samnings að atvinnurekandi standi ekki skil á framangreindum gjöldum.

Vinnumálastofnun er óheimilt að gera samning á grundvelli reglugerðar þessarar við fyrirtæki sem rekið er á kennitölu einstaklings, hafi viðkomandi einstaklingur á síðustu þremur mánuðum fyrir umsókn um gerð samnings staðið mánaðarlega skil á greiðslu staðgreiðsluskatts af reiknuðu endurgjaldi sem nemur minna en 25% af viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein. Samningur sem gerður hefur verið á grundvelli reglugerðar þessarar við fyrirtæki sem rekið er á kennitölu einstaklings fellur úr gildi komi til þess á gildistíma samnings að sá einstaklingur sem rekur fyrirtækið á kennitölu sinni fái greiddar atvinnuleysisbætur eða standi mánaðarlega skil á greiðslu staðgreiðsluskatts af reiknuðu endurgjaldi sem nemur minna en 25% af viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein.

Atvinnurekanda sem Vinnumálastofnun hefur gert samning við á grundvelli reglugerðar þessarar, er óheimilt á gildistíma samnings að leigja hlutaðeigandi atvinnuleitanda til að gegna störfum á vinnustað annars aðila.

Sá tími sem vinnumarkaðsúrræði samkvæmt reglugerð þessari varir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.

15. gr. Viðurlög.

Höfnun á þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum samkvæmt reglugerð þessari getur varðað viðurlögum skv. X. eða XI. kafla laga um atvinnuleysistryggingar eða niðurfellingu á styrk skv. 16. gr. c. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, eftir því sem við á.

Hafi atvinnuleitandi eða atvinnurekandi fengið hærri greiðslur en viðkomandi ber samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar ber viðkomandi að endurgreiða Vinnumálastofnun þá fjárhæð sem ofgreidd var.

16. gr. Kæruheimild.

Heimilt er að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar, sem teknar eru á grundvelli reglugerðar þessarar, til úrskurðarnefndar velferðarmála innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina, sbr. 2. mgr. 11. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 9. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir.

17. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 62. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, og 4. og 5. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, öðlast gildi 1. september 2025. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 918/2020, um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði, og reglugerð nr. 159/1995, um öryrkjavinnu.

Ákvæði til bráðabirgða.

Ráðherra skal fyrir 1. september 2026 taka reglugerð þessa til endurskoðunar. Við framangreinda endurskoðun skal meðal annars haft samráð við hagsmunasamtök fatlaðs fólks.

Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 28. ágúst 2025.

Inga Sæland.

Bjarnheiður Gautadóttir.

B deild - Útgáfudagur: 29. ágúst 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica