Félagsmálaráðuneyti

278/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 462/2003, um Ábyrgðasjóð launa.

1. gr.

Í stað orðanna "10% lágmarksiðgjaldi skv. 2. gr." í a-lið 2. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar kemur: 15,5% af iðgjaldsstofni skv. 3. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 27. gr. laga nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, með síðari breytingum, að fengnum tillögum stjórnar Ábyrgðasjóðs launa, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 8. mars 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica