Fjármálaráðuneyti

722/1997

Reglugerð um SMT-tollafgreiðslu. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um SMT-tollafgreiðslu.

I. KAFLI

Orðaskýringar.

1. gr.

Þegar eftirfarandi orð og orðasambönd eru notuð í þessari reglugerð hafa þau þá merkingu sem hér segir:

SMT-tollafgreiðsla: Tollafgreiðsla sem fer fram með þeim hætti að innflytjandi, útflytjandi eða annar sendir viðkomandi tollstjóra með skjalasendingum milli tölva (SMT) þær upplýsingar sem láta ber honum í té við tollafgreiðslu vara.

Tollstjórar: Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn í sýslum utan Reykjavíkur.

Tollskýrsla: Aðflutnings-, umflutnings- eða útflutningsskýrsla.

Gjöld: Gjöld og skattar hvers konar sem greiða ber við tollmeðferð vöru t.d. tollur, virðisaukaskattur og vörugjald (aðflutningsgjöld eða útflutningsgjöld).

Leyfishafi: Aðili sem fær leyfi til samskipta við tollstjóra með skjalasendingum milli tölva og getur með þeim hætti ráðstafað vöru til tollmeðferðar.

Skjalasending milli tölva (SMT): Sendingar á gögnum milli gagnavinnslukerfa sem fylgja ákveðnum stöðlum.

Rammaskeyti: Safn samstæðra gagna sem raðað er saman samkvæmt ákveðnum stöðlum fyrir skeyti til flutnings með rafeindaboðum milli tölva og forsniðið er þannig að unnt sé að lesa það í tölvu og vinna sjálfvirkt á vélrænan og ótvíræðan hátt. Rammaskeytin skulu gerð samkvæmt viðurkenndum staðli sem samþykktur hefur verið til nota við tollafgreiðslu af ríkistollstjóra, sbr. staðal Sameinuðu þjóðanna (UN/EDIFACT) fyrir SÞ-rammaskeyti vegna tollafgreiðslu vara, og í þeim eiga að koma fram sömu upplýsingar og í þeim tollskjölum sem þau eiga að koma í staðinn fyrir og send eru á milli innflytjenda, útflytjenda, farmflytjenda, tollyfirvalda og annarra, auk annarra upplýsinga sem nefndar eru í reglugerðinni.

Gagnaflutningur: Sending rammaskeyta milli innflytjenda, útflytjenda, farmflytjenda, tollyfirvalda og annarra vegna tollafgreiðslu vara.

Gagnaflutningsnet: Almennt gagnaflutningsnet sem notar viðurkenndan alþjóðastaðal, t.d. X. 400, og fullnægir skilyrðum ríkistollstjóra að öðru leyti.

Gagnahólf leyfishafa: Gagnahólf í gagnaflutningsneti, skráð á nafn leyfishafa, þar sem unnt er að geyma rammaskeyti frá leyfishafa og tollyfirvöldum.

Lykilorð að gagnahólfi leyfishafa: Sérstakt stafrænt auðkenni sem gerir leyfishafa mögulegt að fá aðgang að gagnahólfi sínu í gagnaflutningsneti til að senda rammaskeyti eða veita þeim viðtöku.

Tölvukerfi ríkistollstjóra: Tölvukerfi og hugbúnaður sem notaður er af tollyfirvöldum við tollafgreiðslu vara, álagningu gjalda og innheimtu þeirra.

Tollalínan: Sérstakur aðgangur leyfishafa að tölvukerfi ríkistollstjóra sem gerir honum mögulegt að fá upplýsingar um tollafgreiðslu eigin vörusendinga.

II. KAFLI

Gildissvið.

2. gr.

Með reglugerð þessari er heimilað að aðilar sem um ræðir í III. kafla og til þess fá tilskilin leyfi láti tollyfirvöldum í té með skjalasendingum milli tölva þær upplýsingar sem afhenda ber við tollafgreiðslu. Upplýsingaskipti á milli tollyfirvalda og leyfishafa eða annarra fari þá fram með skjalasendingum milli tölva.

Þegar tollafgreiðsla fer fram skv. 1. mgr. skal viðkomandi leyfishafa, sem ráðstafar vöru eða sendingu til tollmeðferðar, veittur greiðslufrestur á gjöldum og skal hann skuldfærður fyrir þeim.

III. KAFLI

Leyfishafar.

3. gr.

Leyfi til SMT-tollafgreiðslu má veita þeim aðilum sem stunda innflutnings- eða útflutningsverslun, framleiðslu eða viðgerðarþjónustu í atvinnuskyni, enda uppfylli þeir eftirtalin skilyrði:

 a.        Þeir hafi tilskilin leyfi til viðkomandi atvinnustarfsemi, svo sem verslunarleyfi sbr. lög nr. 41/1968 um verslunaratvinnu, iðnaðarleyfi sbr. iðnaðarlög nr. 42/1978, vinnsluleyfi sbr. lög nr. 93/1992 um meðferð sjávarafurða og eftirlit með framleiðslu þeirra, eða önnur leyfi sem krafist er.

 b.        Þeir hafi tilkynnt Hagstofu Íslands um atvinnustarfsemi sína og hafi verið færðir á fyrirtækjaskrá, sbr. lög nr. 62/1969, um fyrirtækjaskrá.

 c.        Þeir hafi tilkynnt skattstjóra um starfsemi sína skv. 5. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

 d.        Þeir séu ekki í vanskilum við ríkissjóð með greiðslu opinberra gjalda eða skatta.

 e.        Ríkistollstjóri hafi samþykkt þann hugbúnað sem umsækjandi hyggst nota til samskipta við tollyfirvöld.

 f.         Þeir hafi á að skipa starfsliði sem hefur til að bera fullnægjandi þekkingu á lögum og reglum um tollmeðferð vara.

4. gr.

Flutningsmiðlurum og þeim sem hafa leyfi til að reka frísvæði eða almennar tollvörugeymslur má veita leyfi til að koma fram gagnvart tollyfirvöldum við SMT-tollafgreiðslu fyrir hönd innflytjenda eða útflytjenda vara eða sendinga.

Aðili, sem fengið hefur heimild skv. 1. mgr., getur að fenginni skriflegri heimild frá innflytjanda eða skriflegri staðfestingu hans á viðtöku vöru óskað þess að aðflutningsgjöld verði skuldfærð á innflytjanda, í samræmi við þær heimildir sem viðkomandi hefur til greiðslufrests á aðflutningsgjöldum.

Þegar tollmeðferð fer fram samkvæmt þessari grein ábyrgjast umboðsaðilar og innflytjendur eða útflytjendur vara eða sendinga in solidum greiðslu gjalda.

IV. KAFLI

Umsókn um leyfi og leyfisveiting.

5. gr.

Tollstjórar, hver í sínu umdæmi, veita leyfi til SMT-tollafgreiðslu.

Þeir sem óska eftir leyfi skulu sækja um það skriflega á þar til gerðu eyðublaði, sbr. 6. gr., til tollstjóra í því tollumdæmi þar sem þeir eiga lögheimili. Telji tollstjóri skilyrði uppfyllt gefur hann út staðfestingu til handa umsækjanda sem veitir honum leyfi til SMT-tollafgreiðslu í öllum tollumdæmum landsins. Hefja má tollmeðferð vara og sendinga með þessum hætti þegar ríkistollstjóri hefur veitt heimild til að tengja tölvukerfi leyfishafa við tölvukerfi ríkistollstjóra og leyfishafi hefur fengið lykilorð að gagnahólfi sem skráð er á hans nafn.

 

6. gr.

Í umsókn um leyfi til SMT-tollafgreiðslu skal greina:

 a.        Nafn umsækjanda, kennitölu, aðsetur og virðisaukaskattsnúmer.

 b.        Hverjir hafi umboð til að skuldbinda hann samkvæmt reglugerð þessari.

 c.        Aðrar þær upplýsingar sem eyðublaðið gefur tilefni til.

Ríkistollstjóri ákveður gerð eyðublaðs sem notað skal skv. 1. mgr.

Verði breytingar síðar á þeim upplýsingum sem fram koma í umsókn, skal það þegar tilkynnt þeim tollstjóra sem veitti leyfið, sbr. 5. gr.

V. KAFLI

Ábyrgðir vegna lánaðra gjalda.

7. gr.

Umsækjandi skal skila með umsókn sinni yfirlýsingu banka, sparisjóðs eða viðurkennds tryggingar- eða ábyrgðarfélags um að tekin sé skilyrðislaus sjálfskuldarábyrgð á tiltekinni fjárhæð lánaðra gjalda hans vegna, auk dráttarvaxta og annars kostnaðar sem leiða kann af vanefndum, sbr. 20. gr.

Fjárhæð ábyrgðar skv. 1. mgr. er jafnframt hámark fjárhæðar lánaðra gjalda.

Ábyrgð skal vera ótímabundin en hún er uppsegjanleg af hálfu ábyrgðaraðila, enda hafi tilkynning um uppsögn sannanlega borist viðkomandi tollstjóra. Ef ábyrgð er sagt upp breytir það ekki ábyrgð á gjöldum sem eru lánuð fyrir gildistöku uppsagnar. Eftir uppsögn ábyrgðar er tollstjóra óheimilt að tollafgreiða vörur samkvæmt reglugerð þessari nema önnur ábyrgð sé sett í stað þeirrar sem sagt var upp, sbr. þó 8. gr.

8. gr.

Víkja má frá kröfu um sjálfskuldarábyrgð samkvæmt 7. gr., enda uppfylli umsækjandi eftirfarandi skilyrði:

 a.        Hann hafi leyfi til einfaldari tollmeðferðar samkvæmt reglum nr. 510/1990, um einfaldari tollmeðferð á vörum.

 b.        Hann sé ekki í vanskilum með opinber gjöld eða skatta til ríkissjóðs þegar beiðni um leyfi til tollmeðferðar samkvæmt reglugerð þessari er borin fram.

 c.        Hann hafi á sama tíma haft tilskilin leyfi til viðkomandi atvinnustarfsemi í a.m.k. þrjá mánuði.

Komi í ljós að leyfishafi uppfyllir ekki lengur ofangreind skilyrði skal tollstjóri þegar í stað krefjast ábyrgðar skv. 7. gr.

9. gr.

Ákvæði þessa kafla taka ekki til rekstraraðila frísvæða og almennra tollvörugeymslna, enda hafi þeir sett tryggingu skv. 3. mgr. 73. gr. tollalaga og hún taki til ábyrgðar á gjöldum þeirra vara sem þeir ráðstafa til tollmeðferðar samkvæmt reglugerð þessari.

10. gr.

Njóti umsækjandi greiðslufrests á virðisaukaskatti og öðrum gjöldum samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 640/1989, um greiðslufrest á virðisaukaskatti og öðrum aðflutningsgjöldum í tolli, með síðari breytingum, gilda ákvæði 3. og 4. gr. hennar um ábyrgðir vegna lánaðra gjalda. Í umsókn um SMT-tollafgreiðslu skal umsækjandi vísa til leyfis sem honum hefur verið veitt samkvæmt reglugerð nr. 640/1989.

Að því leyti sem ekki er kveðið á um heimild og framkvæmd greiðslufrests á lánuðum gjöldum skv. 7.-9. gr. reglugerðar þessarar skulu gilda ákvæði reglugerðar nr. 640/1989.

 

VI. KAFLI

Tollmeðferð.

11. gr.

Þegar SMT-tollafgreiðsla fer fram sendir leyfishafi tollskýrslu um viðkomandi vöru eða sendingu með rammaskeyti um gagnaflutningsnet til tollstjóra þar sem tollmeðferð á að fara fram. Hann skal nota gagnahólf sem skráð er á nafn hans.

Auk leyfishafa mega þeir sem heimild hafa til að skuldbinda hann, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr., annast skjalasendingu milli tölva og notkun gagnahólfs fyrir hönd hans vegna SMT-tollafgreiðslu.

Í rammaskeyti skulu koma fram þær upplýsingar sem veita ber í tollskýrslu skv. 9. gr., sbr. 121. gr. tollalaga og fyrirmælum settum samkvæmt þeim, auk þess sem þar skal tilgreina tilvísunarnúmer leyfishafa og númer vörureikninga vegna vara í þeirri sendingu sem rammaskeytið tekur til. Tilvísunarnúmer skal gefið öllum tollskjölum sem eiga við um þá vöru eða sendingu sem tollskýrsla, sem send er tollstjóra með rammaskeyti, tekur til. Að öðru leyti ákveður viðkomandi leyfishafi sjálfur útfærslu númerakerfis í bókhaldi sínu.

Rammaskeyti samkvæmt þessari grein skal vera í samræmi við fyrirmynd að rammaskeyti fyrir tollskýrslu eins og ákveðið er af ríkistollstjóra skv. 26. gr.

12. gr.

Tollskýrsla sem send er með rammaskeyti skv. 11. gr. telst vera móttekin hjá tollstjóra við skráningu í tölvukerfi ríkistollstjóra. Vara eða sending telst þá vera tekin til tollmeðferðar, enda fullnægi upplýsingarnar sem veittar eru með þessum hætti að öllu leyti þeim skilyrðum sem þurfa að vera fyrir hendi til þess að unnt sé að heimila afhendingu eða útflutning vöru eða sendingar þegar í stað. Um ábyrgð leyfishafa á réttmæti þeirra upplýsinga sem koma fram í rammaskeyti fer eftir ákvæðum 16., sbr. 121. gr. tollalaga. Auk þess að bera ábyrgð á að upplýsingarnar séu réttar, ber hann ábyrgð á að um sé að ræða allar þær upplýsingar sem eiga að koma fram og að þær séu byggðar á þeim tollskjölum sem hefði átt að leggja fram með tollskýrslu ef hann hefði ráðstafað vöru eða sendingu til tollmeðferðar samkvæmt almennum reglum.

Leyfishafi telst með skeyti skv. 11. gr. samþykkja að tollstjóri skuldfæri öll gjöld af þeirri vöru eða sendingu sem skeytið tekur til, án frekari beiðni þess efnis og jafnframt felst í því skuldbinding af hans hálfu um greiðslu gjalda samkvæmt VII. kafla.

13. gr.

Tollstjóri sendir viðkomandi leyfishafa með rammaskeyti í gagnahólf hans heimild til að veita vöru eða sendingu viðtöku frá vörsluhafa vegna innflutnings og tilkynningu um skuldfærslu gjalda sé um það að ræða. Ef um útflutning er að ræða sendir tollstjóri útflytjanda útflutningsheimild og kvittun vegna útflutningstollafgreiðslu og tilkynningu um skuldfærslu gjalda sé um það að ræða. Ennfremur sendir tollstjóri farmflytjanda eða öðrum vörsluhafa vöru eða sendingar rammaskeyti þar sem afhending vöru eða útflutningur er heimiluð (afhendingarheimild/útflutningsheimild).

Rammaskeyti samkvæmt þessari grein skulu vera í samræmi við fyrirmynd slíkra skeyta eins og ákveðið er af ríkistollstjóra skv. 26. gr.

14. gr.

Vara eða sending sem fær tollmeðferð samkvæmt reglugerð þessari telst tollafgreidd þegar tollstjóri hefur heimilað afhendingu eða útflutning skv. 13. gr.

15. gr.

Leyfishafar skulu einungis ráðstafa þeim vörum eða sendingum til tollmeðferðar sem þeir hafa vissu fyrir að séu rétt tollflokkaðar samkvæmt tollskrá, sbr. viðauka I við tollalög, með áorðnum breytingum, og að aðrar tilskildar upplýsingar um þá vöru eða sendingu séu réttar, svo sem um verðmæti við ákvörðun tollverðs, sbr. 8.-10. gr. tollalaga og reglugerð nr. 374/1995, um tollverð og tollverðsákvörðun. Ennfremur þurfa leyfishafar að hafa vissu fyrir því að öllum innflutnings- eða útflutningsskilyrðum sé fullnægt hverju sinni, t.d. að fyrir liggi tilskilin innflutnings- eða útflutningsleyfi og að vottorð séu til staðar sé þeirra krafist við tollmeðferð viðkomandi vöru eða sendingar.

Ef leyfishafar eru í vafa um að öllum skilyrðum skv. 1. mgr. sé fullnægt, skulu þeir hafa samráð við viðkomandi tollstjóra áður en vöru eða sendingu er ráðstafað til tollmeðferðar.

16. gr.

Þeim sem leyfi fá til SMT-tollafgreiðslu er heimilt að senda tollskýrslur með rammaskeytum hvenær sem er, enda hafi ríkistollstjóri ekki stöðvað móttöku skeyta, sbr. 3. mgr. 26. gr.

Leyfishafar skulu hafa aðgang að tollalínu tölvukerfis ríkistollstjóra.

VII. KAFLI

Uppgjörstímabil, gjalddagar og skil lánaðra gjalda.

17. gr.

Um uppgjörstímabil og gjalddaga þeirra vegna greiðslufrests á gjöldum fer eftir ákvæðum reglugerðar nr. 640/1989, um greiðslufrest á virðisaukaskatti og öðrum aðflutningsgjöldum í tolli, með síðari breytingum, skv. 1. og 3. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 1. gr. þeirrar reglugerðar.

18. gr.

Þeir sem fengið hafa greiðslufrest á gjöldum skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir greiða tollstjóra þar sem þeir eiga lögheimili gjöld sem þeim hafa verið lánuð. Greiða má samkvæmt gíróseðli sem sendur er leyfishafa í lok uppgjörstímabils.

19. gr.

Greiðsla gjalda skv. 18. gr. telst fullnægjandi ef:

 a.        greitt er í banka, sparisjóði eða pósthúsi í síðasta lagi á gjalddaga,

 b.        greitt er hjá tollstjóra í síðasta lagi á gjalddaga eða

 c.        póstlögð greiðsla hefur borist tollstjóra í síðasta lagi á gjalddaga.

20. gr.

Verði um vanskil á greiðslu gjalda að ræða samkvæmt 18.-19. gr. skal tollstjóri synja leyfishafa um SMT-tollafgreiðslu á meðan vanskil vara.

Hafi vangreidd gjöld ásamt dráttarvöxtum ekki verið greidd innan 15 daga frá gjalddaga skal tollstjóri ganga að ábyrgð skv. 7. gr., hafi innflytjendur eða útflytjendur skv. 3. gr. eða flutningsmiðlarar skv. 4. gr. ráðstafað vöru eða sendingu til tollmeðferðar. Tollstjóri skal þá ganga að tryggingu rekstraraðila frísvæðis eða almennrar tollvörugeymslu, sbr. 4. gr., hafi þeir aðilar ráðstafað vörunni eða sendingunni til tollmeðferðar.

Einföld krafa tollstjóra til ábyrgðaraðila skv. 2. mgr. nægir og skal greiðsla hafa borist tollstjóra innan 7 daga frá dagsetningu kröfubréfs. Hafi greiðsla eigi borist tollstjóra innan þess tíma skal hvers konar tollafgreiðsla til þess aðila sem ráðstafaði vöru eða sendingu til tollmeðferðar þegar stöðvuð og ekki hefjast að nýju fyrr en fullnaðarskil hafa verið gerð.

Komi til vanskila af hálfu aðila sem 3. gr. tekur til og ekki er um að ræða ábyrgð skv. 7. gr., skulu um stöðvun tollafgreiðslu gilda ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 61/1989, um greiðslustað, gjalddaga og fullnustu aðflutningsgjalda vegna tollmeðferðar á innfluttum vörum, eftir því sem við getur átt.

Nú á innflytjandi eða útflytjandi rétt á endurgreiðslu virðisaukaskatts skv. 26. gr. laga nr. 50/1988 eða endurgreiðslu vegna ofgreiddra gjalda og skal tollstjóri þá skuldajafna endurgreiðslunni á móti kröfum um vangreidd opinber gjöld eða skatta til ríkissjóðs.

VIII. KAFLI

Bókhald og varðveisla gagna.

21. gr.

Þeir sem koma fram gagnvart tollyfirvöldum vegna SMT-tollafgreiðslu skulu varðveita í bókhaldi sínu á aðgengilegan og tryggilegan hátt öll gögn sem snerta tollmeðferð vara og sendinga, hvort sem þau eru skrifleg eða ekki.

Aðilar skv. 1. mgr. skulu halda fullkomna skrá eða gagnadagbók í réttri tímaröð og geyma óbreytt öll rammaskeyti sem þeir senda tollstjórum eða móttaka frá þeim. Þegar gagnadagbók er haldin á tölvutæku formi skal á auðveldan hátt vera unnt að nálgast rammaskeyti og endurmynda þau á læsilegan hátt og prenta þau, ef þess er óskað.

Leyfishafi skal prenta á pappír og varðveita tilkynningu tollstjóra um skuldfærslu gjalda, sbr. 13. gr., og varðveitist hún með tilheyrandi tollskjölum, sbr. m.a. VIII. kafla laga nr. 50/1988.

Varðveita ber bókhaldsgögn í samræmi við lög nr. 145/1994, um bókhald, með áorðnum breytingum, og fyrirmæli sett samkvæmt þeim.

22. gr.

Ákvæði 21. gr. um varðveislu gagna skulu ennfremur eiga við, eftir því sem við getur átt, um varðveislu gagna af hálfu flutningsmiðlara, farmflytjenda og rekstraraðila tollvörugeymslna og frísvæða, varðandi gögn og upplýsingar sem þessir aðilar hafa sent tollyfirvöldum eða móttekið frá þeim vegna SMT-tollafgreiðslu.

IX. KAFLI

Endurskoðun gjalda og ákvörðun gjalda að nýju.

23. gr.

Endurskoðun vegna SMT-tollafgreiðslu skal fara fram eftir á, nema gild rök réttlæti annað. Ríkistollstjóri getur sett nánari framkvæmdareglur um endurskoðun tollstjóra.

Komi í ljós við tollmeðferð vöru annmarki á upplýsingagjöf innflytjanda eða útflytjanda eða að frekari skýringa sé þörf á einhverju atriði, skal fara að fyrirmælum 98., sbr. 149. gr., tollalaga. Tollstjóri skal þá ekki heimila afhendingu vöru fyrr en bætt hefur verið úr annmörkum eða fullnægjandi skýringar hafa verið látnar í té.

Um heimild tollstjóra til að endurákvarða gjöld eftir afhendingu vöru fer eftir 99., sbr. 149. gr. tollalaga. Um heimild ríkistollstjóra til endurákvörðunar gjalda fer eftir 35. gr. tollalaga.

X. KAFLI

Ýmis ákvæði.

24. gr.

Leyfishafar skulu að kröfu tollyfirvalda leggja fram og veita aðgang að bókhaldi sínu og bókhaldsgögnum og öðrum gögnum sem varða innflutning vara sem tollmeðferð fá og veita allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru að mati tollyfirvalda til að ganga úr skugga um að upplýsingar sem veittar eru með þessum hætti séu réttar.

25. gr.

Ákvæði tollalaga nr. 55/1987, með áorðnum breytingum, svo og fyrirmæli sett samkvæmt þeim, skulu gilda um tollmeðferð og tolleftirlit eftir því sem við getur átt.

26. gr.

Ríkistollstjóri hefur umsjón með tölvukerfi því sem notað er af hálfu tollyfirvalda við tollafgreiðslur. Getur hann sett nánari fyrirmæli um framkvæmd slíkra afgreiðslna og m.a. ákveðið gerð þeirra rammaskeyta sem nota ber af hálfu tollstjóra, innflytjenda, útflytjenda og annarra.

Ríkistollstjóri getur ákveðið til hvers konar tollafgreiðslna reglugerð þessi tekur.

Ríkistollstjóri getur ákveðið að stöðva móttöku skeyta sem send eru í tölvukerfi ríkistollstjóra vegna breytinga á gjöldum, tollskrá, tollgengi eða af öðrum ástæðum sem gera það nauðsynlegt að hans mati.

27. gr.

Tollstjóri getur svipt leyfishafa heimild til SMT-tollafgreiðslu vegna ítrekaðra vanskila á greiðslu gjalda sem veittur hefur verið greiðslufrestur á, ef hann fullnægir ekki lengur skilyrðum reglugerðar þessarar eða ef hann hefur af öðrum ástæðum að mati tollstjóra fyrirgert rétti sínum til tollmeðferðar.

Ákvörðun tollstjóra um sviptingu leyfis samkvæmt þessari grein skal vera rökstudd og ber að tilkynna hana í ábyrgðarbréfi. Leyfissvipting tekur gildi 7 dögum frá póstlagningardegi tilkynningar og hefur hún gildi í öllum tollumdæmum landsins.

Heimild til tollmeðferðar samkvæmt reglugerð þessari fellur jafnframt niður þegar ákvæði 3. mgr. 104. gr. tollalaga eiga við.

28. gr.

Misnotkun leyfis sem veitt hefur verið samkvæmt reglugerð þessari getur m.a. varðað við XIV. kafla tollalaga nr. 55/1987.

Um meðferð mála vegna brota á reglugerð þessari fer að hætti opinberra mála.

29. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 14., 109. og 148. gr. tollalaga nr. 55/1987, með áorðnum breytingum, sbr. og heimild í 3. mgr. 34. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 1998. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 309/1992, um tollafgreiðslu og greiðslufrest á aðflutningsgjöldum þegar tollskjöl eru send milli tölva, með áorðnum breytingum.

Fjármálaráðuneytinu, 22. desember 1997.

F. h. r.

Indriði H. Þorláksson.

Bergþór Magnúson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica