Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

958/2000

Reglugerð um holræsagjald í Gerðahreppi.

1. gr.

Hverjum þeim sem á hús eða húshluta í Gerðahreppi eða leigir lóð í sveitarfélaginu við götu eða opið svæði sem holræsi hefur verið lagt í ber að greiða árlegt holræsagjald til sveitarsjóðs.

Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0,15% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

2. gr.

Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða, en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Holræsagjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur holræsagjaldið lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

3. gr.

Gjalddagar holræsagjalds eru þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist holræsagjaldið með fasteignasköttum.

4. gr.

Sveitarstjórn er heimilt að fella niður eða veita afslátt af holræsagjaldi sem tekjulitlum elli- eða örorkulífeyrisþegum er gert að greiða.

Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Gerðahrepps staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15/1923 til að öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 22. desember 2000.

F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.

Guðjón Bragason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.