Félagsmálaráðuneyti

298/2001

Reglugerð um fráveitu í Stykkishólmi. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um fráveitu í Stykkishólmi.


I. KAFLI
Um fráveituna.
2. gr.

Stykkishólmsbær starfrækir fráveitu í bæjarfélaginu. Bæjarsjóður kostar rekstur hennar og framkvæmdir við hana. Bæjarstjórn ákveður framkvæmdir við fráveitu og veitir árlega fé á fjárhagsáætlun bæjarsjóðs til reksturs og framkvæmda við hana.

Tæknideild bæjarfélagsins fer með umsjón, hönnun, framkvæmdir og rekstur fráveitunnar í umboði bæjarstjórnar.


3. gr.

Fráveitan veitir fráveituvatni sem getur verið húsaskólp, iðnaðarskólp, ofanvatn, frárennslisvatn hitaveitu, kælivatn og ræsisvatn um fráveitulagnir frá byggð til viðtaka.

Einföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni saman í einni fráveitulögn en tvöföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni í tveimur aðskildum samliggjandi fráveitulögnum.

Bæjarsjóður á allar holræsalagnir fráveitu, útrásir, stofnræsi, götuholræsi, ofanvatnsræsi í götum og opnum svæðum og götufráræsi að fráræsum húseigna við lóðamörk. Enn fremur allan fráveitubúnað, brunna, niðurföll, hverfisrotþrær, dælustöðvar og hreinsistöðvar.


4. gr.

Þar sem fráveita bæjarfélagsins nær til skal húseigendum séð fyrir götufráræsi frá götuholræsi að lóðarmörkum húseigna. Þar sem fráveitan liggur um lóðir skal séð fyrir tengigrein á holræsalögn. Tæknideild bæjarfélagsins ákveður legu götuholræsa og tengigreina.


5. gr.

Húseigendum sem eiga húseignir við vegi eða opin svæði þar sem fráveita bæjarfélagsins liggur er skylt að leggja á sinn kostnað fráræsi frá húseignum sínum og tengja þau við fráveituna. Þegar lögð er tvöföld fráveita skulu húseigendur halda skólpi aðskildu frá ofanvatni og bakrennslisvatni hitaveitu. Að öðru leyti er bent á ákvæði reglugerðar um fráveitur og skólp nr. 798/1999.


6. gr.

Þegar ekki er unnt að ná nægilegum halla á fráræsi húseignar að fráveitu bæjarfélagsins skal húseigandi leiða fráveituvatn frá húseigninni að safnbrunni þannig staðsettum að hægt sé að veita fráveituvatni frá honum í fráveitu bæjarfélagsins.


7. gr.

Þar sem fráveita bæjarfélagsins nær ekki til skulu húseigendur leiða fráveituvatn frá fráræsum húseigna um rotþrær og siturleiðslur. Húseigandi kostar niðursetningu og annan frágang rotþróa og lagna. Rotþró skal samþykkt af byggingarfulltrúa og hafa hlotið viðurkenningu Hollustuverndar. Húseigandi kostar allt viðhald.

Þegar fráveita bæjarins hefur verið lögð skulu húseigendur kosta og tengja fráræsi húseigna við hana.


8. gr.

Þegar tengja skal fráræsi húseigna við fráveitu bæjarfélagsins eða veita fráveituvatni frá þeim um rotþró, sé þess ekki kostur að tengja fráræsislögn frá húseign við fráveitu, skal sækja um það til byggingarfulltrúa bæjarins á þar til gerðum eyðublöðum sem bærinn lætur í té. Umsóknir skulu undirritaðar af húseigendum eða fullgildum umboðsmönnum þeirra ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að vinna. Umsóknum skulu fylgja teikningar af fráveitulögnum húsa og lóða og fráræsum frá húseignum sem tengja fráveitu bæjarfélagsins.

Umsóknum um rotþrær skulu fylgja teikningar sem sýni gerð þeirra og staðsetningu og siturleiðslur að viðtaka auk teikninga af fráveitulögnum húsa og lóða. Rotþró skal valinn þannig staður að auðvelt sé að komast að henni með tæki til hreinsunar, sbr. 12. gr.


9. gr.

Teikningar skulu fylgja almennum reglum um hönnun fráveitulagna í húsum, sbr. byggingarreglugerð og byggingarskilmála. Allt efni skal standast kröfur um efni og vinnu sem gerðar eru á hverjum tíma.


10. gr.

Byggingarfulltrúi bæjarins skal hafa eftirlit með því að fráveitulagnir frá húseignum séu lagðar samkvæmt samþykktum teikningum. Áður en lagnir eru huldar skal einnig taka út og viðurkenna fráræsi frá húseignum og tengingar þeirra við fráveitu bæjarins eða rotþrær.


11. gr.

Eigendum fasteigna er skylt að hlíta því að lagnir fráveitu bæjarfélagsins séu lagðar um lóðir þeirra og lönd og fram fari á þeim nauðsynlegt viðhald enda sé haft um það samráð við lóðarhafa. Stykkishólmsbæ er skylt að halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um og færa allt til fyrra horfs eins og við verður komið.


12. gr.

Húseigendum er skylt að halda vel við fráveitulögnum húseigna sinna og sjá um hreinsun á fráræsum og gæta þess að þau stíflist ekki.

Óheimilt er að láta í fráveitu bæjarfélagsins hvers kyns olíur, bensín, lífræn leysiefni eða annað það sem skemmt getur eða truflað rekstur fráveitukerfisins. Um mengunarvarnir fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og reglugerða, með síðari breytingum.


13. gr.

Þar sem hætta er á að fráveituvatn frá fráveitu bæjarfélagsins flæði til baka um fráræsislagnir frá húseignum vegna vatnsborðsriss af völdum ofanvatns eða hárrar sjávarstöðu skulu húseigendur koma fyrir sjálfvirkum flóðlokum við gólfniðurföll.


II. KAFLI
Um fráveitugjald.
14. gr.

Af öllum fasteignum í Stykkishólmi sem liggja við vegi, götur eða opin svæði þar sem holræsalagnir fráveitu bæjarfélagsins liggja skal greiða árlega fráveitugjald og skal því varið til þess að standa straum af kostnaði við fráveitu bæjarins.


15. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 94/1976, með síðari breytingum.

Fráveitugjald skal nema 0,20% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald.

Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.


16. gr.

Fráveitugjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Fráveitugjald má innheimta með fjárnámi og má gera fjárnám í hinni skattskyldu eign. Nýtur fráveitugjaldið fjárnámsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.


17. gr.

Brot á reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Mál varðandi brot á reglugerð þessari skal farið með að hætti opinberra mála.


Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Stykkishólms, staðfestist hér með skv. X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Stykkishólmi nr. 173/1974.


Félagsmálaráðuneytinu, 23. mars 2001.

F. h. r.
Sigríður Lillý Baldursdóttir.
Guðjón Bragason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica