Félagsmálaráðuneyti

212/2001

Reglugerð um fráveitu í Eyrarsveit. - Brottfallin

Felld brott með samþykkt nr. 234/2007
1. gr.

Reglugerð þessi gildir um fráveitu í Eyrarsveit.


I. KAFLI
Um fráveituna.
2. gr.

Eyrarsveit starfrækir fráveitu í sveitarfélaginu, sveitarsjóður kostar rekstur hennar og framkvæmdir við hana. Sveitarstjórn ákveður framkvæmdir við fráveitu og veitir árlega fé á fjárhagsáætlun sveitarsjóðs til reksturs og framkvæmda við hana.

Tæknideild sveitarfélagsins fer með umsjón, hönnun, framkvæmdir og rekstur fráveitunnar í umboði sveitarstjórnar.


3. gr.

Skilgreiningar:

Fráveita: Leiðslukerfi og búnaður til meðhöndlunar skólps.

Fráveituvatn: Vatn (skólp, ofanvatn, vatn frá upphitunarkerfum húsa o.fl.) sem veitt er í fráveitur.

Skólp: Húsaskólp og iðnaðarskólp eða blanda húsaskólps og iðnaðarskólps og/eða ofanvatns.

Fráveitan veitir fráveituvatni sem getur verið húsaskólp, iðnaðarskólp, ofanvatn, frárennslisvatn vatns- eða hitaveitu, kælivatn og ræsisvatn um fráveitulagnir frá byggð til viðtaka.

Einföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni saman í einni fráveitulögn en tvöföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni í tveimur aðskildum samliggjandi fráveitulögnum.

Sveitarsjóður á allar holræsalagnir fráveitu, útrásir, stofnræsi, götuholræsi, ofanvatnsræsi í götum og opnum svæðum og götufráræsi að fráræsum húseigna. Enn fremur allan fráveitubúnað, brunna, niðurföll, hverfisrotþrær, dælustöðvar og hreinsistöðvar.


4. gr.

Þar sem fráveita sveitarfélagsins nær til skal húseigendum séð fyrir götufráræsi frá götuholræsi að lóðamörkum húseigna. Þar sem fráveitan liggur um lóðir skal séð fyrir tengigrein á holræsalögn. Tæknideild sveitarfélagsins ákveður legu götuholræsa og tengigreina.


5. gr.

Húseigendum sem eiga húseignir við vegi eða opin svæði þar sem fráveita sveitarfélagsins liggur er skylt að leggja á sinn kostnað fráræsi frá húseignum sínum og tengja þau við fráveituna. Þegar lögð er tvöföld fráveita skulu húseigendur halda skólpi og ofanvatni aðskildu í tvöfaldri fráveitulögn og tengja hana tvöfaldri fráveitu sveitarfélagsins. Að öðru leyti er bent á ákvæði reglugerðar um fráveitur og skólp nr. 798/1999.


6. gr.

Þar sem fráveita sveitarfélagsins nær ekki til skulu húseigendur leiða fráveituvatn frá fráræsum húseigna um rotþrær og siturleiðslur, sbr. reglur sem um það gilda á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Húseigandi kostar niðursetningu og annan frágang rotþróa og lagna. Rotþró skal samþykkt af byggingafulltrúa og hafa hlotið viðurkenningu Hollustuverndar. Húseigandi kostar allt viðhald.

Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar gildir þó ekki um þær húseignir í þéttbýli sem sveitarstjórn ákveður að ekki skuli tengja fráveitu sveitarfélagsins sökum erfiðra landfræðilegra aðstæðna.

Þegar fráveita sveitarfélagsins hefur verið lögð skulu húseigendur kosta og tengja fráræsi húseigna við hana.


7. gr.

Þegar tengja skal fráræsi húseigna við fráveitu sveitarfélagsins eða veita fráveituvatni frá þeim um rotþró sé þess ekki kostur að tengja fráræsislögn frá húseign við fráveitu skal sækja um það til byggingafulltrúaembættis sveitarfélagsins á þar til gerðum eyðublöðum sem þar eru látin í té. Umsóknir skulu undirritaðar af húseigendum eða fullgildum umboðsmönnum þeirra ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að vinna. Umsóknum skulu fylgja teikningar af fráveitulögnum húsa og lóða og fráræsum frá húseignum sem tengja á fráveitu sveitarfélagsins.

Umsóknum um rotþrær skulu fylgja teikningar sem sýna gerð þeirra og staðsetningu og siturleiðslur að viðtaka auk teikninga af fráveitulögnum húsa og lóða. Rotþró skal valin þannig staður að auðvelt sé að komast að henni með tæki til hreinsunar, sbr. 11. gr.


8. gr.

Teikningar skulu fylgja almennum reglum um hönnun fráveitulagna í húsum, sbr. byggingarreglugerð og byggingarskilmála. Allt efni skal standast kröfur um efni og vinnu sem gerðar eru á hverjum tíma.


9. gr.

Byggingafulltrúaembætti sveitarfélagsins skal hafa eftirlit með því að fráveitulagnir frá húseignum séu lagðar samkvæmt samþykktum teikningum. Áður en lagnir eru huldar skal það einnig taka út og viðurkenna fráræsi frá húseignum og tengingar þeirra við fráveitu sveitarfélagsins eða rotþrær.


10. gr.

Eigendum fasteigna er skylt að hlíta því að lagnir fráveitu sveitarfélagsins séu lagðar um lóðir þeirra eða lönd og fram fari á þeim nauðsynlegt viðhald.

Eyrarsveit er skylt að halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um og færa allt til fyrra horfs eftir því sem við verður komið.


11. gr.

Eigendum fasteigna er skylt að halda vel við fráveitulögnum húseigna sinna og sjá um hreinsun á fráræsum og gæta þess að þau stíflist ekki.

Óheimilt er að láta í fráveitu sveitarfélagsins hvers kyns olíur, bensín, lífræn leysiefni eða annað það sem skemmt getur eða truflað rekstur fráveitukerfisins. Um mengunarvarnir fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum, og reglugerða.


12. gr.

Þar sem hætta er á að fráveituvatn frá fráveitu sveitarfélagsins flæði til baka um fráræsislagnir frá húseignum vegna vatnsborðsriss af völdum ofanvatns eða hárrar sjávarstöðu skulu húseigendur koma fyrir sjálfvirkum flóðlokum við gólfniðurföll.


II. KAFLI
Um fráveitugjald.
13. gr.

Af öllum fasteignum í Eyrarsveit sem liggja við vegi, götur eða opin svæði þar sem holræsalagnir fráveitu sveitarfélagsins liggja skal greiða árlega fráveitugjald og skal því varið til þess að standa straum af kostnaði við fráveitu sveitarfélagsins. Hið sama gildir um fasteignir þar sem rotþrær hafa verið settar upp og sveitarfélagið þjónustar.


14. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976 með síðari breytingum.

Fráveitugjald skal nema 0,1% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald.


15. gr.

Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

Skráður eigandi fasteignar samkvæmt matsskrá Fasteignamats ríkisins ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

16. gr.

Fráveitugjald má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Fráveitugjald nýtur lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.


17. gr.

Brot á reglugerð þessari varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál vegna brota á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.


Reglugerð þessi sem er samin og samþykkt af sveitarstjórn Eyrarsveitar staðfestist hér með skv. X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Grundarfirði nr. 267/1976.


Félagsmálaráðuneytinu, 28. febrúar 2001.

F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.
Guðjón Bragason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica