Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

193/2000

Reglugerð um holræsagjald í Eyjafjarðarsveit.

1. gr.

Hverjum þeim sem á hús eða húshluta í Eyjafjarðarsveit eða leigir lóð í sveitarfélaginu við götu eða opið svæði sem holræsi hefur verið lagt í ber að greiða árlegt holræsagjald til sveitarsjóðs. Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0,05% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

2. gr.

Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða en leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Holræsagjald má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni gjaldskyldu eign án tillits til eigenda-skipta. Holræsagjald nýtur lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

3. gr.

Sveitarstjórn getur samþykkt að fella niður eða lækka holræsagjald hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum samkvæmt heimild í 5. mgr. 87. gr. vatnalaga, sbr. lög nr. 137/1995.

4. gr.

Gjalddagar holræsagjalds eru þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist holræsagjald með fasteignasköttum.

Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar staðfestist hér með samkvæmt X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til þess að öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 17. mars 2000.

F. h. r.

Sesselja Árnadóttir.

Óskar Páll Óskarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.