Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

337/1972

Reglugerð um holræsi og holræsagjöld á Patreksfirði.

1. gr.

Sveitarstjórn hefur ein heimild til þess að leggja holræsi um Patreksfjarðarkauptún. Holræsagerð staðarins er sjálfstætt fyrirtæki með sérstöku reikningshaldi.

2. gr.

Þar sem sveitarstjórn hefur látið leggja holræsi í götu, veg eða opið svæði, er hverjum húseiganda, sem lóð á þar að, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, sem flytji skólp frá húsinu út að aðalræsi og haldi við sinni heimæð. Regnvatn af húsi eða lóð skal einnig, að svo miklu leyti sem unnt er, lent í húsræsið. Ef húseigandi vanækir að leggja holræsi innan hæfilegs frests, sem sveitarstjórn tiltekur, skal verkið unnið á hans kostnað. Greiða skal kr. 5 000.00 í tengigjald.

3. gr.

Áður en húseigandi byrjar að leggja holræsi, skal hann leggja fram uppdrátt af holræsalögn innan húss og í grunni, er sýni legu, halla og stærð, gerð og annað því viðkomandi. Uppdráttur skal gerður af pípulagningamanni eða öðrum sérfróðum mönnum.

Aðeins pípulagningamanni eða öðrum, sem sveitarstjórn hefur samþykkt, skal heimilt að leggja holræsalagnir.

Engar lagnir má hylja fyrr en byggingafulltrúi hefur samþykkt þær.

4. gr.

Sveitarstjórn löggildir menn, sem teljast skuli hæfir að leggja og ganga frá holræsum, bæði innan húss og utan.

Þeir einir, sem sveitarstjórn löggildir til holræsalagningar skulu hafa rétt til að leggja og ganga frá holræsum, sem standa í sambandi við holræsakerfi staðarins.

5. gr.

Kostnaður við holræsagerð staðarins greiðist af holræsagerðinni. Til þess að standast útgjöld þau, sem stafa af lagningu holræsanna, ber hverjum þeim, sem hús á, lóð eða lóðarréttindi við götu eða veg eða opið svæði, sem hreppurinn hefur lagt holræsi í, greiða árlega til holræsagerðarinnar 0.15% af fasteignamati húss og lóðar, þó aldrei minna en kr. 1 200.00 af húsi eða hluta af húsi, sem talin er sér í fasteignamati enda sé skólplögn að viðkomandi húseign eða húshluta. Gjöld samkvæmt grein þessari er sveitarstjórn heimilt að hækka eða 1ækka um 50 af hundraði, án þess að samþykki ráðuneytisins komi til.

6. gr.

Heimilt er sveitarstjórn að yfirtaka núverandi holræsakerfi einstakra manna samkvæmt samkomulagi við hlutaðeigendur eða samkvæmt mati, ef ágreiningur verður.

7. gr.

Húseigandi ber ábyrgð á greiðslu holræsagjalds.

Gjaldið hefur lögtaksrétt og er það tryggt með lögveði í lóð og mannvirkjum lóðareiganda á henni næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Árlegur gjalddagi holræsagjalds er sá sami og fasteignaskatts.

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum allt að kr. 10.000.00, sem rennur í sveitarsjóð. Mál út af brotum gegn reglugerð þessari skal fara með sem almennt lögreglumál.

Reglugerð þessi staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923 til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 176 13. júní 1968 um holræsi í Patrekshreppi.

Félagsmálaráðuneytið, 8. desember 1972.

F. h. r.

Hjálmar Vilhjálmsson.

Hallgrímur Dalberg

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.