Félagsmálaráðuneyti

145/1991

Reglugerð um álagningu gatnagerðargjalds við byggðar götur í þéttbýli í Vallahreppi. - Brottfallin

1. gr.

Húseigendur í þéttbýli í Vallahreppi, Suður-Múlasýslu, skulu greiða gatnagerðargjöld til sveitarsjóðs Vallahrepps fyrir hús og lóðir um leið og götur eru lagðar bundnu slitlagi, B-gjald.

Við álagningu þessara gatnagerðargjalda skal nota eftirfarandi einingartölur:

                                                                                                                                          kr.

  1. Einbýlishús að 400 m3 m/bifreiðageymslu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . . . .128 053
  2. Parhús að 400 m3 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . .102 443
  3. Íbúðarhús m/alit að 4 íbúðum og raðhús á einni hæð að 400 m3 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 81 952
  4. Raðhús á 2 hæðum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . .61 465
  5. Fjölbýlishús m/allt að 8 íbúðum 2 hæðir að 300 m3 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . 51 219
  6. Fjölbýlishús m/fleiri en 8 íbúðum 3 hæðir að 300 m3 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . 35 855
  7. Verslunar- og skrifstofuhús pr. m3 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . .205
  8. Iðnaðarhús og vörugeymslur pr. m3 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . 154
  9. Umframstærðir í íbúðarhúsum pr. m3 . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . .205
  10. Útihús og vélageymslur pr. m3 . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . .102
  11. Viðbygging við eldri hús, ef húsið m/viðbyggingu verður meira en 400 m3 pr. m3  . . . . . . .205
  12. Lóðarhafar greiða pr. m2 lóðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . . . . .. . . . . . . . . . 41
  13. Lagning slitlags á bifreiðastæði og gangstíga innan lóðamarka greiða eigendur sjálfir.
  14. Allar framangreindar einingartölur miðast við byggingarvísitölu í október 1990 172,5.

2. gr.

Gatnagerðargjöld skv. 1 . gr. skulu umreiknuð til samræmis við þá byggingarvísitölu, sem í gildi er, þegar lagning bundins slitlags fer fram. (Breyting frá október 1990 vísitala 172,5. )

3. gr

Gatnagerðargjald skv. 1. gr. skal greitt með fimm jöfnum greiðslum, í fyrsta skipti hinn 1. ágúst það ár sem lagning fer fram, og síðan 1. ágúst ár hvert næstu 4 árin. Síðustu greiðslu þarf þó ekki að inna af hendi fyrr en endanlega hefur verið gengið frá viðkomandi götu með gangstétt.

4. gr.

Vextir of lánum vegna gatnagerðargjalda skv. 3. gr. skulu vera hinir sömu og almennir vextir Byggðasjóðs á hverjum tíma. Verði dráttur á endanlegum frá gangi, sbr. 3. gr. má eigi reikna vexti of síðustu greiðslu nema eitt ár, eins og ef enginn dráttur hefði orðið.

5. gr

Gatnagerðargjaldi fylgir lögveð í fasteign þeirri, sem það er lagt á, og gengur það, ásamt vöxtum, fyrir öllum veðkröfum, sem á eigninni hvíla, næstu fimm ár eftir fyrsta gjalddaga.

Tekur þessi kvöð einnig til vátryggingarfjár eignarinnar. Heimilt er að taka gjald samkvæmt reglugerð þessari lögtaki samkvæmt lögum nr. 29/1885.


Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt of hreppsnefnd Vallahrepps, staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 51/1974 um gatnagerðargjöld, sbr. lög nr. 31/1975, til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Félagsmálaráðuneytið, 20. mars 1991.

F. h. r.

Berglind Ásgeirsdóttir.

Húnbogi Þorsteinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica