Félagsmálaráðuneyti

115/2000

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 2/1999 um útgáfu húsbréfa á árinu 1999 fyrir Íbúðalánasjóð, sbr. reglugerð nr. 607/1999. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 2/1999 um útgáfu húsbréfa á árinu

1999 fyrir Íbúðalánasjóð, sbr. reglugerð nr. 607/1999.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður:

Reglugerð um útgáfu húsbréfa á árinu 1999 og 2000 fyrir Íbúðalánasjóð.

2. gr.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar, með síðari breytingu, orðast svo:

Samanlögð fjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta úr 1. og 2. flokki 1998 skal ekki vera umfram 30.142 milljónir króna á árinu 2000 miðað við reiknað markaðsvirði húsbréfanna. Þannig skal samanlögð fjárhæð samþykktra skuldabréfaskipta 1998, 1999 og 2000 úr 1. og 2. flokki húsbréfa 1998 ekki fara umfram 83.849 milljónir króna miðað við fyrrnefnt reiknað markaðsvirði.

3. gr.

3. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Húsbréfaflokkunum skal lokað eigi síðar en 15. september 2000.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 24. gr. og 29. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 15. febrúar 2000.

Páll Pétursson.

Ingi Valur Jóhannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica