Félagsmálaráðuneyti

58/1973

Reglugerð um holræsi í Hafnarhreppi, Höfn, Hornafirði. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um holræsi í Hafnarhreppi, Höfn, Hornafirði.

 

1. gr.

Þegar Hafnarhreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga hús að eða í námunda við, skylt að leggja á sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, svo sem unnt er, leiða í ræsið. Vanræki einhver að gera holræsi eða endurnýja eldra, innan hæfilegs tíma, sem sveitarstjóri ákveður, getur hreppurinn látið vinna verkið á kostnað húseigenda.

 

2. gr.

Hafnarhreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann lætur gera eftir 1. janúar 1973. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðamörkum húsa. Heimlagnir eru á kostnað húseigenda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðaúthlutun.

 

3. gr.

Sveitarstjóri, verkstjóri og byggingarfulltrú i undir yfirstjórn sveitarstjórnar, fara með stjórn framkvæmda, er holræsakerfi kauptúnsins varðar. Heimilt er sveitarstjórn að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsakerfisins. Áður en húseigandi byrjar að leggja holræsi sitt skal fá samþykki umsjónarmanns þar til. Skal húseig­andi leggja fram teikningar af frárennsliskerfi sínu, ef krafizt verður. Skylt er hús­eiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns í öllu því, er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því, að vel og örugg­lega sé frá öllu gengið.

 

4. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsam­þykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseigenda, þar sem ástæða þykir til.

 

5. gr.

Bannað er að láta renna i holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

 

6. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði. Til að standast þann kostnað, er húseigendum, sem hús eiga við veg, götu eða opið svæði, þar sem hol­ræsi er lagt í, skylt að greiða árlega holræsagjald til sveitarsjóðs, sem nemur 0.10% af fasteignamati húsa eins og það er reiknað á hverjum tíma. Lágmarksgjald skal þó vera kr. 500.00. Holræsagjaldið getur sveitarstjórn hækkað um allt að 50% án þess að leita þurfi staðfestingar ráðuneytisins.

 

7. gr.

Holræsagjaldið greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitarsjóði. Kröfur, sem sveitarsjóður kann að öðlast samkvæmt reglu­gerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldenda og eru gjöld þessi tryggð með lög­veði í húseigninni í næstu 2 ár eftir gjalddaga, með fasteignamatsveði fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gjalddagi holræsagjalda er hinn sami og fast­eignaskatts.

 

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til þess að öðlast gildi þegar í stað, og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Félagsmálaráðuneytið, 21. febrúar 1973.

 

Hannibal Valdimarsson.

                                                  Hallgrímur Dalberg


Þetta vefsvæði byggir á Eplica