Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 19. maí 2000

80/1973

Reglugerð um holræsi í Raufarhafnarhreppi.

1. gr.

Þegar Raufarhafnarhreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga húseignir að eða i námunda við og til holræsa geta náð, skylt að leggja á sinn kostnað holræsi frá húsinu, er flytji allt skólp frá því út í aðalræsið. Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, ef unnt er, leiða í ræsið eða í sérstakt holræsi fyrir ofanjarðarvatn, ef gert er, samkvæmt fyrirmælum verkstjóra. Vanræki einhver að láta gera nýtt holræsi eða endurnýja eldra, innan hæfilegs frests, sem sveitarstjóri ákveður, getur hreppurinn látið vinna verkið á kostnað húseiganda.

2. gr.

Raufarhafnarhreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann lætur gera eftir 1. janúar 1973. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðarmörkum húsa. Heimlagnir eru á kostnað húseiganda. Við raðhrís eða fjölbýlishús skal um holræsastúta fara eftir nánari skilmálum um lóðarúthlutun.

Gjald fyrir að tengjast holræsakerfinu skal vera kr. 1000.00 á hús, auk þess skal greiða kr. 500.00 á íbúð umfram eina.

3. gr.

Sveitarstjóri, verkstjóri og byggingarfulltrúi, undir yfirstjórn sveitarstjórnar, fara með stjórn framkvæmda, er holræsakerfi kauptúnsins varða. Heimilt er sveitarstjórn að fela sérstökum umsjónarmanni yfirstjórn holræsakerfisins. Áður en húseigandi byrjar að leggja holræsi sitt skal fá samþykki umsjónarmanns þar til. Skal húseigandi leggja fram teikningar af frárennsliskerfi sínu, ef krafizt verður. Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns á öllu því, er að tilhögun og lagningu ræsanna lýtur, enda hafi starfsmenn hreppsins ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið. Engar lagnir má hylja fyrr en fulltrúi sveitarstjórnar hefur samþykkt þær.

4. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsamþykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

5. gr.

Bannað er að láta renna i holræsakerfið sýrur, olíur eða önnur efni, sem valdið geta skemmdum á holræsakerfinu eða varanlegri mengun.

6. gr.

Kostnaður við aðalholræsakerfið greiðist úr sveitarsjóði, en til að standast þann kostnað er húseigendum, sem hús eiga við veg, götu eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt í, skylt að greiða holræsagjald, sem nemur 0.10% af hinu opinbera fasteignamati húss, eins og það reiknast á hverjum tíma. Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds.

7. gr.

Holræsagjald skal greiða eigi siðar en 15. apríl ár hvert og greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart sveitars,jóði. Holræsagjald má taka lögtaki. og má gera lögtak í hinu skattskylda húsi án tillits til eigendaskipta. Skattur nýtur lögveðsréttar í húseignum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum, allt að kr. 100 000.00, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Reglugerð þessi, sem hreppsnefnd Raufarhafnarhrepps hefur samið og samþykkt og gerð er samkvæmt lögum nr. 15 20. júní 1923, staðfestist hér með til að öðlast gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 157 11. nóvember 1958 um holræsi í Raufarhafnarhreppi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.