Félags- og tryggingamálaráðuneyti

552/2009

Reglugerð um breytingu á reglugerð um lánshlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 540/2006, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Í stað fjárhæðarinnar "570.000 kr." í 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 400.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 19. gr. og 29. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 24. júní 2009.

Árni Páll Árnason.

Óskar Páll Óskarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica