Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

12/1995

Reglugerð um holræsagjald í Vestmannaeyjum.

1. gr.

Hverjum þeim, sem á hús eða húshluta í Vestmannaeyjakaupstað eða leigir lóð í bænum við götu eða opið svæði, sem holræsi hefur verið lagt í, ber að greiða árlegt holræsagjald til bæjarsjóðs Vestmannaeyja.

Upphæð holræsagjaldsins skal vera 0,09% af fasteignamati allra húsa og lóða skv. lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald.

2. gr.

Holræsagjald greiðist af hús- og íbúðareiganda, lóðareiganda, ef um eignarlóð er að ræða, en af leigutaka, ef um leigulóð er að ræða, og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Holræsagjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Nýtur holræsagjaldið lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

3. gr.

Gjalddagar holræsagjalds eru þeir sömu og gjalddagar fasteignagjalda og greiðist holræsagjaldið með fasteignagjöldum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Fyrsti gjalddagi holræsagjalds á árinu 1995 er 15. janúar og eindagi fyrsta gjalddaga er 15. febrúar.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Vestmannaeyjakaupstaðar, staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15/1923 til þess að öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytið, 13. janúar 1995.

F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.

Sesselja Árnadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.