Félagsmálaráðuneyti

391/1987

Reglugerð um gatnagerðargjöld í Tálknafjarðarhreppi, V-Barðastrandarsýslu. - Brottfallin



1. gr.

Gatnagerðargjald A er gjald vegna þátttöku lóðarhafa í kostnaði við að undirbyggja götu með tilheyrandi lögnum.

2. gr.

       Af öllum nýbyggingum svo og stækkunum eldri húsa, hvort sem er á eignar- eða leigulóðum í Tálknafjarðarkauptúni skal greiða gatnagerðargjald til sveitarsjóðs samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

3. gr.

       Af hverjum rúmmetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar á rúmmetra eins og hann er hverju sinni á vísitöluhúsi skv. útreikningi Hagstofu Íslands, svo sem hér segir:      

                                                                                                                                                                       

               Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu                                                               2.0%

               Raðhús og tvíbýlishús                                                                                         1.7%

               Fjölbýlishús                                                                                                       1.5%

               Verslunar- og skrifstofubyggingar                                                                       2.0%

               Iðnaðarhús, vörugeymslur og annað atvinnuhúsnæði                                            1.0%

               Opinberar byggingar                                                                                         2.0`%

               Aðrar byggingar                                                                                                1.0%

       Rúmmál húss skal reikna frá neðstu grunnplötu. Í atvinnuhúsnæði skal ætíð við útreikning rúmmáls til gatnagerðargjalds, miðað við lofthæð 3,3 m að innanmáli, nema uppdráttur sýni lægri lofthæð. Framangreindar reglur gilda ef hús er stækkað að því er til stækkunar tekur.                                    

       Af bifreiðageymslum skal greiða hálft gjald þeirrar húsagerðar, sem á lóðinni er.

       Af gluggalausu kjallararými íbúðarhúsa, sem myndast, þegar hagkvæmara er, að mati byggingarnefndar, að grafa út grunn en fylla hann upp skal aðeins greiða 25% af venjulegu rúmmetragjaldi enda sé aðeins gengið í húsrýmið innan frá.

       Jafnframt ofangreindu gjaldi og sem hluta þess skal lóðarhafi greiða kr. 7,30 af hverjum fermetra lóðar, hvort sem bygging er þar á lóð eða ekki.

 

4. gr.

Ef lóðarhafi rífur á eigin kostnað gamalt íbúðarhús til þess að byggja nýtt á sömu 1óð, skal lækka gjald skv. 3. gr. vegna nýja hússins um þá upphæð, sem svarar til rúmmáls hússins, sem rifið var. Lækkun gjaldsins getur þó aldrei orðið meiri en nemur greiðslu skv. 3. gr. vegna nýja hússins.

 

5. gr

 

            Gjald skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum teikningum. Nú er ekki fyrir­liggjandi teikning og skal þá miðað við stærð húss, sem skipulag gerir ráð fyrir en sé slíkt ekki ákveðið í skipulagi skal miða við eftirfarandi lágmarksstærðir:

Einbýlishús með tilheyrandi bílgeymslu . . . . . . . . . . . . . . . . 500 m3

 Íbúðir í raðhúsum og tvíbýlishúsum . . . . . . . . . . . . . . . . . . .400 m3

 Íbúðir í fjölbýlishúsum ........................................................300 m3

 

            Aðrar byggingar skv. 3. gr. skal ákvarða til lágmarksstærðar af byggingafulltrúa í hverju tilviki fyrir sig.

 

 

            Lágmarksgjald samkvæmt lágmarksstærðum, skal greiða innan eins mánaðar frá lóðarúthlutun. Með lágmarksgjaldi er átt við gjald miðað við m3 stærð húsnæðis, m3  stærð bílgeymslu og annars húsnæðis er ekki hefur áður verið greitt fyrir í lágmarksgjaldinu, einnig stofngjald vatnsveitu, stofngjald holræsis og byggingarleyfisgjald skv. gjaldskrám.

            Þegar byggt er á eignarlóð eða eldra hús stækkað, skal greiða gjaldið áður en byggingarframkvæmdir hefjast.

Byggingarframkvæmdir verða ekki leyfðar nema fullnaðaruppgjör hafi farið  fram.

 Hreppsnefnd er heimilt að víkja frá <íkvæðum þessarar greinar og veita greiðslufrest, ef um er að ræða umfangsmiklar byggingarframkvæmdir eins aðila.

 

6. gr

Gjald skv. 3. gr. skal reikna miðað við byggingarkostnað vísitöluhúss eins og hann kann að vera þann dag er lóðarúthlutun fer fram og lágmarksgjald er reiknað út, og eins og hann kann að vera, þegar teikning er endanlega samþykkt í byggingarnefnd og lokagjald reiknað út. Sé um blandaða notkun húsnæðis að ræða skal reikna gjaldið eftir viðkomandi liðum.

            Sé veitt byggingarleyfi fyrir breytingu eða endurbyggingu húsnæðis, sem felur í sér breytta notkun þess, þannig að húseignin eða hluti hennar færist í hærri gjaldflokk, skal greiða gjald af hinu breytta húsnæði, sem nemur mismun á gjaldinu reiknuðu af hinu breyta húsnæði fyrir og eftir breytingu.

 

7. gr.

            Sé gatnagerðargjald ekki greitt í samræmi við ákvæði 5. gr. fellur lóðarúthlutun sjálfkrafa ú gildi og getur hreppsnefnd þá úthlutað lóðinni á ný.

 

8. gr.

            Óski lóðarhafi að skila lóð,á hann rétt á endurgreiðslu á greiddu gatnagerðargjaldi þ.e. þeim m3 fjölda er áður hefur verið greiddur, á því rúmmetragjaldi, er gildir sbr. 3. gr. þegar lóð er skilað.  Heimilt er að fresta endurgreiðslu, uns lóðin hefur verið veitt að nýju, þó ekki lengur en 12 mánuði frá því lóðinni er skilað.

            Sé heimild til að fresta endurgreiðslu notuð, skal sveitarsjóður greiða lóðarhafa almenna innlánsvexti af innistæðu hans er ógreidd kann að vera í 3 mánuði eða lengur. Sé lóðin tekin af lóðarhafa vegna vanefnda hans á skilmálum, skal sama gilda, utan innistæða hans her ekki vexti verði heimild til frestunar á greiðslu notuð.

 

9. gr.

            Falli byggingarleyfi úr gildi og verði endurnýjað síðar, skal reikna gjaldið að nýju en áður greitt gjald kemur til frádráttar.  Þ. e.  sama  m3 tala og greidd hafði verið.

            Sé gjald ekki greitt innan eins mánaðar sbr. 5. gr. skal endurreikna það eftir þann tíma til samræmis við hugsanlega breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhúss sbr. 2. gr.

            Komi til að lágmarksgjald, sem greitt er samkvæmt lágmarksstærðum, reynist hærri í krónutölu en lokagjaldið skal endurgreiða mismuninn á raunvirði vaxtalaust.

 

10. gr.

Lóðin er veitt í því ástandi sem hún er í við afhendingu og á lóðarhafi engar kröfur á hendur sveitarsjóði miðað við ástand hennar.

 

11. gr.

            Gatnagerðargjald B er gjald vegna þátttöku lóðarhafa í kostnaði við að leggja bundið slitlag á götu og frágang gangstétta.

 

12. gr.

            Af öllum húsum, nýbyggingum og stækkunum eldri húsa, hvort sem er á eignar- eða leigulóð í Tálknafjarðarkauptúni skal greiða gatnagerðaragjald til sveitarsjóðs skv. gjaldskrá þessari.

 

13. gr.

            Af hverjum rúmmetra húss greiðist ákveðinn hundraðshluti byggingarkostnaðar pr. rúmmetra eins og hann er hverju sinni á vísitöluhúsi skv. útreikningi Hagstofu Íslands svo sem hér segir:

Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu                                                                 3,5%

Raðhús og tvíbýlishús                                                                                           2,7%

Fjölbýlishús                                                                                                         2,0%

Verslunar- og skrifstofubyggingar                                                                         3,5%

Iðnaðarhús, vörugeymslur og annað atvinnuhúsnæði                                              1,5%

Opinberar byggingar                                                                                            3,5%

Aðrar byggingar                                                                                                   1,5°%

            Rúmmál húss skal reikna frá neðstu grunnplötu. Í atvinnuhúsnæði skal ætíð, við útreikning rúmmáls til gatnagerðargjalds miðað við lofthæð 3,3 m að innanmáli nema uppdráttur sýni lægri lofthæð. Framangreindar reglur gilda ef hús er stækkað að því er til stækkunar tekur.

            Af bifreiðageymslum skal greiða hálft gjald þeirrar húsgerðar sem á lóðinni er.

            Af gluggalausu kjallararými íbúðarhúsa, sem myndast þegar hagkvæmara er, að mati byggingarnefndar, að grafa út grunn en fylla hann upp skal aðeins greiða 25% af venjulegu rúmmetragjaldi enda sé aðeins gengt í húsrými innan frá.

 

14. gr.

            Gjald skal miðað við stærð húss samkvæmt samþykktum teikningum. Nú er ekki fyrirliggjandi teikning og skal þá miða við stærð húss> sem skipulag gerir ráð fyrir en sé slíkt ekki ákveðið í skipulagi, skal miða við eftirfarandi lágmarksstærðir:

Einbýlishús með tilheyrandi bílgeymslu                                                                    500 m'

Íbúðir í raðhúsum og tvíbýlishúsum                                                                         400 m'

         Íbúðir í fjölbýlishúsum                                                                                            300 m'

            Aðrar byggingar samkvæmt 11. gr. skal ákvarða til lágmarksstærðar af byggingarfull­trúa í hverju tilviki fyrir sig.

            Lágmarksgjald samkvæmt lágmarksstærðum skal greiða samkvæmt ákvæðum 15. gr. Með lágmarksgjaldi er átt við gjald miðað við m' stærð húsnæðis samkvæmt ofanskráðum lágmarksstærðum.

            Þegar teikning liggur fyrir og hlýtur samþykki í byggingarnefnd skal lokagjald reiknað út og gjaldfellt og skal greiða það samkvæmt ákvæðum 13. gr. Með lokagjaldi er átt við útreikning á endanlegri m3 stærð hússins m3 stærð bifreiðageymslu og annars húsnæðis, er ekki hefur verið greitt fyrir í lágmarksgjaldinu.

 

15. gr.

            Gjald skv. 13. gr. miðast við byggingarkostnað vísitöluhúss á þeim tíma, sem lokaframkvæmdir víð lagningu bundins slitlags fara fram. Nú verður hús byggt við þegar fullgerða götu og skal þá miðað við byggingarkostnað, þegar teikning er samþykkt í byggingarnefnd.

            Af álögðu gjaldi falla 20% í gjalddaga einum mánuði eftir að framkvæmdum við tiltekna götu eða götukafla öðrum en við lagningu gangstétta, er lokið eða einum mánuði eftir samþykkt teikningar, ef um hús við fullgerða götu er að ræða. Greiða má 80% gjaldsins með skuldabréfum, sem greiðast með jöfnum atborgunum á næstu 4 árum. Skuldabréfin skulu vera með sömu kjörum og lán þau er Byggðasjóður veitir til varanlegrar gatnagerðar, og greiðast afborganir og vextir ásamt verðbótum á gjalddaganum 1. jú1í ár hvert. Sveitarsjóði er heimilt að selja skuldabréfin.

            Staðgreiði lóðarhafi álagt gatnagerðargjald skv. 13. gr. er heimilt að veita staðgreiðslu­afslátt allt að 10% eftir ákvörðun hreppsnefndar á hverjum tíma.

            Hreppsnefnd er heimilt að fresta álagningu B-gjalds ef um er að ræða íbúðarhúsnæði elli- og örorkulífeyrisþega, sem engar eða litlar tekjur hafa aðrar en tryggingabætur, húsnæðið er af hæfilegri stærð og ekki nýtt til annars en íbúðar fyrir þá. Skilyrði fyrir frestun álagningar er, að gjaldinu verði þinglýst sem kvöð á viðkomandi eign og falli til álagningar í samræmi við þá gildandi gjaldskrá, ef eigendaskipti verða eða aðstæður breytast á annan hátt. að forsendur frestunarinnar bresti.

 

16. gr.

            Gatnagerðargjaldi fylgir lögveð í fasteign þeirri sem það er lagt á og gengur það ásamt vöxtum fyrir í öllum veðkröfum sem á eigninni hvíla og tekur einnig til vátryggingarfjár hennar.

 

            Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps staðfestist hér með samkvæmt lögum um gatnagerðargjöld nr. 51/1974 sbr. lög nr. 31/1975 til þess að öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytið, 5. ágúst 1987.

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica