Félagsmálaráðuneyti

19/1980

Reglugerð um gatnagerðargjöld í Gerðahreppi í Gullbringusýslu. - Brottfallin

1. gr.

Hreppsnefnd er heimilt að leggja gatnagerðargjöld á lóðir á skipulögðu svæði í Garði eftir því sem nánar segir í reglugerð þessari. Heimilt er að leggja gatnagerðar­gjald á land, sem sambærilegt telst, þótt ekki sé sérstök lóð.

 

2. gr.

Gatnagerðargjald A er gjald vegna þátttöku lóðarhafa i kostnaði við undirbygg­ingu götu með tilheyrandi lögnum.

 

3. gr.

Nú ákveður sveitarstjórn að leggja á gatnagerðargjald vegna nýbyggingar og skal þá miða gjaldið við ákveðinn hundraðshluta af byggingarkostnaði á rúmmetra eins og hann er talinn af Hagstofu Íslands, svo sem hér segir:

Einbýlishús, tvíbýlishús .....................................................................................  1.5%

Tveggja hæða raðhús, og íbúðarhús .................................................................. 1.0%

Fjölbýlishús ...................................................................................................... 0.5%

Verslunar- og skrifstofubyggingar ...................................................................... 1.5%

Iðnaðarhús, vöruskemmur og annað atvinnuhúsnæði .......................................... 0.5%

Opinberar byggingar ......................................................................................... 1.5%

Bílskúrar .........................................................................................................  1.5%

Önnur hús .......................................................................................................  0.5%

Auk þessa gjalds skal lóðarhafi greiða kr. 140 af hverjum fermetra lóðar. Gjald skal miða við stærð húss, skv. samþykktum uppdrætti. Nú er ekki fyrir hendi      samþykktur uppdráttur, og skal þá miða við stærð húss, sem skipulag gerir ráð       fyrir, en sé slíkt ekki ákveðið i skipulagi skal miða við eftirtaldar lágmarksstærðir:          

Einbýlishús með tilheyrandi bílgeymslu .......................................................................  500 m3

Raðhús, tvíbýlishús, samb. einbýlishús hver íbúð ........................................................  400 m3

Fjölbýlishús ..............................................................................................................  300 m3

Í atvinnuhúsnæði skal við útreikning rúmmáls til gatnagerðagjalda miðað við lofthæð 3.3 m að innanmáli, nema uppdráttur sýni annað.

Framangreindar reglur gilda, ef hús er stækkað, að því er ti1 stækkunar tekur.

 

4. gr.

Gjöld samkvæmt 3. gr. breytast árlega samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar, sem gildir 1. mars ár hvert.

Grunntölur þær, sem nefndar eru i 3. gr. miðast við þá vísitölu byggingar­kostnaðar sem var í gildi 1. mars 1979.

 

5. gr.

Hreppsnefnd er heimilt að hækka eða lækka gjaldstuðla samkv. gr. 3 hvern fyrir sig, eða alla i einu, um allt að 50% án frekari staðfestingar ráðuneytis.

 

6. gr.

Gjalddagar gatnagerðargjalds, samkv. 3. gr. skulu vera samkv. eftirfarandi: Úthlutun er háð því, að full skil verði gerð innan ákveðins frests, áður en byggingarleyfið verður veitt eða sérstakur samningur gerður um greiðslur.


 

7. gr.

Byggingarfrestur er 12 mánuðir, þ. e. a. s., að lóð fellur aftur til sveitarfélags­ins hafi framkvæmdir ekki verið hafnar innan þess tíma frá veitingu hennar, nema veitingin hafi verið háð öðrum skilmálum um byggingarfrest.

Noti lóðarhafi ekki veitta lóð skal hann eiga rétt á endurgreiðslu á greiddu gatnagerðargjaldi svo sem hér segir:

Eftir 6 mánuði endurgreiðast 50%. Eftirstöðvar endurgreiðast eftir 12 mánuði.

Verði lóðin veitt að nýju innan þess tíma, skal fyrri lóðarhafi fá gatnagerðar­gjaldið endurgreitt, þegar greiðsla samkvæmt þeirri úthlutun fer fram.

 

8. gr.

Gatnagerðargjaldi fylgir lögveð í fasteign þeirri, sem lagt er á, og gengur það ásamt vöxtum fyrir öllum veðkröfum, sem á eigninni hvíla og tekur það einnig til vátryggingarfjár eignarinnar.

Heimilt er að taka gjöld samkvæmt reglugerð þessari lögtaki samkv. lögum nr. 29/1885.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Gerðahrepps, Gull­bringusýslu staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 51/1974 til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Félagsmálaráðuneytið, 7. janúar 1980.

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica