Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 10. apríl 2000

125/1973

Reglugerð um holræsi í Hvolsvallarkauptúni í Rangárvallasýslu.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Þegar Hvolhreppur hefur látið leggja holræsi í veg, götu eða annað opið svæði, eða þar sem hreppurinn hefur tekið að sér viðhald og endurnýjun eldri holræsa, er þeim húseigendum, er þar eiga hús eða í námunda við, skylt að leggja á sinn kostnað ræsi frá húsinu, sem flytji allt skólp frá því út í aðalræsið.

Regnvatn af húsum og lóðum skal einnig, eftir því sem unnt er, leiða í ræsið.

Vanræki einhver húseigandi að láta gera ræsi, skal hreppsnefnd heimilt, með hæfilegum fyrirvara, að vinna verkið á kostnað húseiganda.

Bannað er að leiða frárennsli frá gripahúsum í holræsi hreppsins.

2. gr.

Hvolhreppur lætur leggja holræsastúta út frá aðalræsi í nýjum götum, sem hann lætur gera eftir 1. jan. 1972. Skulu stútar þessir ná út fyrir götu að lóðarmörkum húsa. Heimlagnir eru á kostnað húseiganda. Við raðhús eða fjölbýlishús skal fara eftir nánari skilmálum um lóðarúthlutun.

3. gr.

Áður en húseigandi byrjar að leggja ræsi sitt skal hann skýra oddvita eða þeim, sem hreppsnefnd hefur falið umsjón með lagningu holræsa frá því og fá samþykki þar til.

Skylt er húseiganda að hlýða fyrirmælum umsjónarmanns í öllu því, er að tilhögun lagningu ræsanna lýtur, enda hafi umsjónarmaður ávallt eftirlit með því, að vel og örugglega sé frá öllu gengið.

4. gr.

Allt efni, sem notað er til holræsagerðar, skal standast kröfur byggingarsamþykktar, en auk þess getur byggingarnefnd sett reglur um sérstaka hreinsibrunna á holræsakerfi húseiganda, þar sem ástæða þykir til.

5. gr.

Kostnaður allur við aðalholræsakerfið greiðist úr hreppsjóði. Til að standast þann kostnað, svo og viðhald aðalholræsakerfisins, ber hverjum húseiganda eða íbúðareiganda, sem á hús eða íbúð við götu, veg eða opið svæði, þar sem holræsi er lagt, að greiða tengigjald um leið og hann tengir ræsi við aðalholræsi kr. 5 000.00 miðað við hús með einni íbúð. Hækkar gjald þetta um kr. 3 000.00 við hverja íbúð í húsinu umfram eina, sé eigandinn hinn sami að öllum íbúðunum. Fyrir atvinnuhúsnæði greiðast kr. 10.00 á hvern m3 húseignarinnar.

Auk tengigjalds skal húseigandi eða íbúðareigandi greiða árlegt holræsagjald til hreppsins 0.25% af fasteignamati húseignanna og lóðar eins og það er reiknað á hverjum tíma.

Undanþága frá greiðslu hins almenna fasteignaskatts skapar ekki undanþágu frá greiðslu holræsagjalds.

7. gr.

Holræsagjald greiðist af húseiganda og er hann einn ábyrgur fyrir greiðslu þess gagnvart hreppnum.

Kröfur þær, sem hreppsnefnd kann að öðlast samkvæmt reglugerð þessari, má taka lögtaki á kostnað gjaldanda, og eru gjöld þessi tryggð með lögveði i húseigninni í næstu tvö ár eftir gjalddaga, með forgangsveðrétti fyrir hvers konar samnings- og aðfararveði.

Gjalddagi holræsagjalds er 15. janúar ár hvert.

Gjaldið greiðist oddvita hreppsins eða þeim, sem hreppsnefnd felur innheimtu þess.

8. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 10 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum, sekt þessi rennur í sveitarsjóð. Má1 út af broti gegn reglugerð þessari skal fara með sem almennt lögreglumál.

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Hvolhrepps í Rangárvallasýslu, staðfestist hér með samkvæmt vatnalögum nr. 15 20. júní 1923, til þess að öðlast gildi þegar í stað, og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Jafnframt er úr gildi felld reglugerð um holræsi i Hvolsvallarkauptúni í Rangárvallasýslu nr. 203 30. des. 1958.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.