Félags- og tryggingamálaráðuneyti

1205/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur fatlaðra, nr. 155/1995, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Fjárhæðir sem nefndar eru í reglugerðinni skulu breytast þannig:

Í 3. mgr. 11. gr. komi 14.600 kr. í stað 13.000 kr. (1. fl.), 11.300 kr. í stað 10.000 kr. (2. fl.) og 8.700 kr. í stað 7.700 kr. (3. fl.).

Í 1. mgr. 12. gr. komi 900 kr. í stað 800 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 55. gr. laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 29. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Lára Björnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica