Viðskiptaráðuneyti

816/2006

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2790/1999 frá 22. desember 1999 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða. - Brottfallin

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2000 frá 28. janúar 2000 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2790/1999 frá 22. desember 1999 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2790/1999 hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 283/2001 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2001, bls. 631-636.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með þessari reglugerð fellur úr gildi 2. gr. j reglugerðar nr. 594/1993 um efnislegar samkeppnisreglur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. reglugerð nr. 283/2001.

Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Jónína S. Lárusdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica