Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

367/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 149/2011 (að því er varðar endurbætur á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS-stöðlum)).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2012, frá 10. febrúar 2012, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 149/2011 frá 18. febrúar 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar endurbætur á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS-stöðlum).

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 149/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 19/2012, 29. mars 2012, bls. 164.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2012 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 24. apríl 2012.

Steingrímur J. Sigfússon.

Helga Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.