Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 26. sept. 2020

155/2005

Reglugerð um greiðslu kostnaðar vegna grafartöku og árlegs viðhalds legstaða.

1. gr.

Kirkjugörðum eða kirkjugarðasjóði ber að greiða kostnað vegna grafartöku og árlegs viðhalds legstaða.

Greiðsluskyldur kostnaður er eðlilegur kostnaður við grafartöku.

Kirkjugarði ber að sjá um eða greiða eðlilegan kostnað við árlegt viðhald legstaðar, svo sem hreinsun hans, hirðingu trjáa og annars gróðurs og smávægilegar lagfæringar á leiði, minnismerki eða öðru, eftir því sem nauðsyn krefur.

2. gr.

Ofangreind greiðsluskylda hvílir á kirkjugarði þar sem jarðsett er. Greiðsluskylda vegna andláts barns sem eigi hefur greitt kirkjugarðsgjöld hvílir einnig á kirkjugarði þar sem jarðsett er.

Ef jarðsett er í löglegan heimagrafreit greiðir kirkjugarður sömu sóknar eðlilegan grafarkostnað. Kirkjugarði ber eigi að greiða kostnað við viðhald legstaða í heimagrafreit.

3. gr.

Ef telja má að greiðsla kostnaðar samkvæmt reglugerð þessari sé fjárhag kirkjugarðs ofviða, ber kirkjugarðasjóði að greiða nefndan kostnað, að ósk viðkomandi kirkjugarðsstjórnar. Kirkjugarðsstjórn ber að leggja fullnægjandi gögn um fjárhag kirkjugarðs fyrir stjórn kirkjugarðasjóðs ef þess er farið á leit.

Fari stjórn kirkjugarðs þess á leit er stjórn kirkjugarðasjóðs heimilt að ákveða að greiða kostnaðar samkvæmt reglugerð þessarari, sem falla kann á kirkjugarðinn um tveggja ára skeið í senn, án undangenginnar umsóknar hverju sinni.

4. gr.

Biskup sker úr ágreiningi um greiðsluskyldu og fjárhæð greiðslna samkvæmt reglugerð þessari. Skjóta má úrlausn hans til dómsmálaráðherra.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 50. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 9/1994 um greiðslu útfararkostnaðar o.fl.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 27. janúar 2005.

Björn Bjarnason.

Hjalti Zóphóníasson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.