Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
Í stað orðanna "Norðurlandi vestra" hvarvetna sem þau koma fram í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Vestfjörðum.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Allar sjálfseignarstofnanir með staðfesta skipulagsskrá skulu skráðar í fyrirtækjaskrá og tilkynna sýslumanni um kennitölu sína.
2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Óheimilt er að skipa lögaðila í stjórn. Hafi einstaklingur á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda er hann ekki bær til að sitja í stjórn sjálfseignarstofnunar.
2. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Fjárvörsluaðili skal vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Hafi einstaklingur á síðustu þremur árum hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir verknað sem brýtur gegn almennum hegningarlögum, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald, lögum um ársreikninga, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. eða lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda er hann ekki bær til að vera fjárvörsluaðili sjálfseignarstofnunar.
2. málsl. 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Sýslumaður getur átt frumkvæði að þessum aðgerðum.
Í stað orðsins "Ríkisendurskoðun" í 16. gr. reglugerðarinnar kemur, í viðeigandi beygingarfalli: sýslumaður.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 1. gr. og 7. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 1125/2006.
Dómsmálaráðuneytinu, 5. maí 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild - Útgáfudagur: 21. maí 2026