5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Happdrættið gefur árlega út 80.000 - áttatíu þúsund - miða í 12 flokkum, einum flokki fyrir hvern mánuð. Í hverjum flokki eru gefnar út tvær raðir miða með sömu númerum, sem greinast að með bókstöfunum A og B. Sama miðaverð gildir um hvora flokkaröð.
Í hverjum mánuði er dregið úr öllum útgefnum miðanúmerum. Einungis skráðum eiganda miða í röð A er heimilt að kaupa miða með sama númeri í röð B. Hafi hann gert það, og hljóti sá miði vinning, tvöfaldast vinningsfjárhæðin.
Þegar keyptur er happdrættismiði skal það skráð í tölvuskrá happdrættisins yfir seld númer. Kaupanda miðans er afhent kvittun til staðfestingar. Hún ber áritað númer miða, frá 1 til 80.000, auk auðkenna raðarinnar (A eða B), svo og verð miðans og þann eða þá flokka sem greitt er fyrir. Á hana skal einnig prenta nafn og merki happdrættisins, svo og eiginhandarundirskrift framkvæmdastjóra happdrættisins. Ef miði er seldur annars staðar en hjá aðalumboði skal stimpla á kvittunina umboðsnúmer og sölustað.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga nr. 18/1959, öðlast gildi 1. janúar 2026.
Dómsmálaráðuneytinu, 3. desember 2025.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Bryndís Helgadóttir.
B deild - Útgáfudagur: 18. desember 2025