Dómsmálaráðuneyti

77/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð um starfsháttu örorkunefndar, nr. 335/1993, með síðari breytingum.

1. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Gjald fyrir álitsgerð um mat á afleiðingum slysa samkvæmt 1. gr. greiðist í ríkissjóð og skal vera sem hér segir:

  1. Gjald fyrir álitsgerð um mat á afleiðingum slyss þegar aðilar eru sammála um að leggja matsbeiðni fyrir örorkunefnd án undanfarandi mats annarra kr. 306.000.
  2. Gjald fyrir álitsgerð um mat á afleiðingum slyss þar sem óskað er endurskoðunar á mati sem aðrir hafa framkvæmt kr. 433.000.
  3. Gjald fyrir álitsgerð um mat á afleiðingum tveggja slysa þar sem óskað er endurskoðunar á mati eða mötum sem aðrir hafa framkvæmt kr. 433.000 fyrir fyrra slys og kr. 390.000 fyrir seinna slys.
  4. Gjald fyrir álitsgerð um mat á afleiðingum slyss vegna endurupptöku máls kr. 145.000.

Greiðsla skal fylgja beiðni um álitsgerð. Sé beiðni vísað frá skal gjaldið endurgreitt.

 

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 10. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 8. janúar 2021.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica