Dómsmálaráðuneyti

394/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 560/2009, um íslensk vegabréf.

1. gr.

Við 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr málsliður, svohljóðandi:

Þó er heimilt að víkja frá almennum fresti til útgáfu vegabréfs við sérstakar aðstæður.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 11. gr. laga um vegabréf nr. 136 22. desember 1998, með síðari breytingum, öðlast gildi þegar í stað.

Dómsmálaráðuneytinu, 12. maí 2017.

Sigríður Á. Andersen.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica