Innanríkisráðuneyti

545/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð um löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda, nr. 1122/2006, með síðari breytingum.

1. gr.

1. gr. orðast svo:

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skal frá og með 1. júlí 2015 annast löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 4. gr. laga um dómtúlka og skjala­þýðendur, nr. 148 20. desember 2000 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júlí 2015.

Innanríkisráðuneytinu, 5. júní 2015.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica