1. gr.
1. og 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. reglugerð nr. 278 6. mars 2013, orðast svo:
Verð hlutamiða í hvorri flokkaröð skal vera 18.000 kr. ef keyptur er miði sem gildir í öllum 12 flokkum happdrættisársins sem er frá 1. maí til 30. apríl.
Verð miða fyrir hvern flokk er 1.500 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16 13. apríl 1973, með síðari breytingum, öðlast gildi 20. apríl 2015.
Innanríkisráðuneytinu, 13. apríl 2015.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.