Innanríkisráðuneyti

1150/2014

Reglugerð um umdæmi lögreglustjóra.

1. gr.

Landinu er skipt í níu lögregluumdæmi. Eiga sveitarfélög undir hvert þeirra, sem hér segir:

  1. Umdæmi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu:
    Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Mosfellsbær, Kjósarhreppur, Hafnarfjarðar­kaupstaður, Garðabær og Kópavogsbær.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Höfuðborgarsvæðið.
    Lögreglustöðvar: Lögreglustöðvar eru samkvæmt ákvörðun ráðherra hverju sinni eftir tillögu lögreglustjóra.

  2. Umdæmi lögreglustjórans á Vesturlandi:
    Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Snæfells­bær, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkis­hólms­bær og Dalabyggð.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Borgarnes.
    Lögreglustöðvar: Akranes, Stykkishólmur, Búðardalur, Ólafsvík, Grundarfjörður.

  3. Umdæmi lögreglustjórans á Vestfjörðum:
    Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur og Stranda­byggð.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Ísafjörður.
    Lögreglustöðvar: Patreksfjörður, Hólmavík.

  4. Umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra:
    Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Sauðárkrókur.
    Lögreglustöð: Blönduós.

  5. Umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra:
    Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaða­hreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanes­byggð.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Akureyri.
    Lögreglustöðvar: Húsavík, Siglufjörður, Dalvík, Þórshöfn.

  6. Umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi:
    Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Eskifjörður.
    Lögreglustöðvar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Vopnafjörður, Neskaupstaður, Fáskrúðs­fjörður, Djúpivogur.

  7. Umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi:
    Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafn­ings­hreppur, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Hvolsvöllur.
    Lögreglustöðvar: Selfoss, Vík, Kirkjubæjarklaustur, Höfn.

  8. Umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum:
    Vestmannaeyjabær.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Vestmannaeyjabær.

  9. Umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum:
    Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær og Sveitar­félagið Vogar.
    Aðalstöð lögreglustjóra: Reykjanesbær.
    Lögreglustöðvar: Grindavík, Sandgerði, Garður, Vogar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

2. gr.

Ef mörk milli umdæma lögreglustjóra eru óskýr, svo sem á hálendinu, ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar.

Á sama hátt ákveður ráðherra í hvaða umdæmi mál komi til úrlausnar ef það getur af ein­hverjum ástæðum átt undir fleiri en einn lögreglustjóra.

3. gr.

Með lögreglustöð er átt við starfsstöð lögreglu utan aðalstöðvar lögreglustjóra. Lög­reglu­stjóri ákveður viðverutíma lögreglu á lögreglustöðvum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 6. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, sbr. lög nr. 51/2014 um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum öðlast gildi 1. janúar 2015. Fellur þá úr gildi reglugerð nr. 66/2007, um stjórn­sýslu­umdæmi sýslumanna og lögregluumdæmi lögreglustjóra, með áorðnum breyt­ingum.

Innanríkisráðuneytinu, 19. desember 2014.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica