Innanríkisráðuneyti

151/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1129/2008 um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt.

1. gr.

  1. Í stað orðanna "dómsmálaráðherra" í 2. gr. og 3. mgr. 3. gr. og "dómsmála­ráðuneyti" í 2. mgr. 7. gr. kemur: Útlendingastofnun.
  2. Í stað orðsins "dómsmálaráðuneytisins" í 3. mgr. 3. gr. kemur: stofnunarinnar.
  3. Í stað orðsins "dómsmálaráðherra" í 1. mgr. 6. gr. kemur: innanríkisráðherra.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. tölulið 9. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 10. febrúar 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica