Innanríkisráðuneyti

1043/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 348/1976, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 11. gr., sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1046/2010, orðast svo:

Verð hlutamiða er 1.300 kr. í hverjum flokki. Fyrir ársmiða skal greiða 15.600 kr. Ef eigandi miða vill gera hann að ársmiða, eftir að drættir, einn eða fleiri, hafa farið fram, skal hann greiða fyrirfram fyrir þá drætti, sem eftir eru.

2. gr.

15. gr., sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 1118/2005, orðast svo:

Dráttur í hverjum flokki fer fram 10. hvers mánaðar. Ekki skal þó dregið á laugardögum, helgidögum eða öðrum almennum frídögum, né heldur fyrsta virkan dag eftir almennan frídag. Fer dráttur þá fram næsta virkan dag þar á eftir. Happdrættisráð getur veitt undanþágu frá þessari grein ef því þykir ástæða til.

3. gr.

19. gr., sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 1046/2010, orðast svo:

Dregið er einu sinni í mánuði fyrir hvern flokk happdrættisins með eftirfarandi hætti:

I. Aðalútdrátur - almenni hlutinn:

  1. Útdráttur hæstu vinninga í almenna hlutanum:
    Vinningsnúmer vegna hæstu vinninga í 1.-12. flokki eru dregin út með notkun átta hólfa stokksins. Númerin skulu vera á bilinu 1-60.000. Tölur sem koma fram í þeim fimm hólfum stokksins sem eru fjærst snúningshnúð mynda miðanúmerið. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Útdregið vinningsnúmer er því aðeins gilt að það sé á bilinu 1-60.000. Númerið verður hluti af vinningaskrá.
  2. Útdráttur annarra vinninga en hinna hæstu í almenna hlutanum fer fram með tvennum hætti:
    1. Með notkun tölvu:
      1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
      2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
      3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður. Dráttarforritið skal hannað til að draga út önnur miðanúmer en þau sem hlotið hafa hæsta vinning.
      4. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
      5. Tölvan dregur og prentar út skrá sem verður hluti af vinningaskrá.
    2. Með notkun stokks:
      Valdar eru tveggja stafa tölur. Valið fer fram með notkun átta hólfa stokks og er sú tala, sem fram kemur og síðustu tveir stafir mynda, skráð. Lesið skal frá þeim enda átta hólfa stokksins sem fjær er snúningshnúð. Val er endurtekið þar til tilskilinn fjöldi talna hefur fengist. Tölurnar verða hluti af vinningaskrá, en þær vísa til síðustu tveggja tölustafa í hverju miðanúmeri. Þau miðanúmer sem þannig er vísað til eru vinningsnúmer.
  3. Að þessum útdrætti loknum er prentuð út vinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni.

II. Útdráttur stakra milljónavinninga:

  Með notkun tölvu úr seldum miðanúmerum.

  1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
  2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
  3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá seldra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F, G eða H).
  4. Skrá seldra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eð trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar.
  5. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir, eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
  6. Tölvan dregur og prentar út vinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni. Í hvert sinn sem trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur útdreginna einfaldra miðanúmera. Í útdrætti er mögulegt að fimm vinningar falli á sama trompmiðann.

III. Útdráttur 10 milljóna króna veltupotts ("Milljónaveltu") í 1.-11. flokki:

 Með notkun tölvu úr öllum miðanúmerum.

  1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
  2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
  3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá allra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F, G eða H).
  4. Skrá allra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eð trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar.
  5. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæðir eru settar inn frá lyklaborði tengdu tölvunni og prentast jafnframt út.
  6. Tölvan dregur og prentar út vinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni. Ef trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur einfaldra miðanúmera.
  7. Ef vinningur fellur á óseldan miða bætist vinningsupphæðin við vinningsupphæð í síðari útdrætti næsta mánaðar.

IV. Útdráttur 10 milljóna króna veltupotts ("Milljónaveltu") í 12. flokki:

 Með notkun tölvu úr seldum miðanúmerum.

  1. Valin er 48 stafa lykiltala. Fer valið fram með notkun átta hólfa stokksins og er sú átta stafa tala sem fram kemur skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Aðgerðin er endurtekin þar til fyrir liggur 48 stafa tala.
  2. Tölvan er hreinsuð og færð í upphafsstöðu.
  3. Valið er dráttarforrit og annar hugbúnaður. Dráttarforritið skal hannað til að draga út miðanúmer úr skrá seldra miðanúmera (tölunúmer ásamt bókstöfunum B, E, F, G eða H).
  4. Skrá seldra miðanúmera er flutt í tölvuna. Hvert selt trompmiðanúmer skal hafa verið skráð fimm sinnum í skrána þar eð trompmiði hefur sama gildi og fimm einfaldir miðar.
  5. Lykiltalan og upplýsingar varðandi útdráttinn, svo sem fjöldi númera og vinningsfjárhæð, eru settar inn í tölvuna og prentast jafnframt út.
  6. Tölvan dregur og prentar út vinningaskrá sem happdrættisráð staðfestir með undirskrift sinni. Í hvert sinn sem trompmiðanúmer er dregið út úr skránni hlýtur eigandi þess sömu fjárhæð og eigendur útdreginna einfaldra miðanúmera. Í útdrætti er því mögulegt að fimm vinningar falli á sama trompmiðann.

V. Tölva, dráttarforrit og annar hugbúnaður er settur í tösku sem innsigluð er af happdrættisráðinu.

 Happdrættisráð færir í gerðabók skýrslu um framkvæmd útdráttar.

4. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 5. gr. laga um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13 13. apríl 1973 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013.

Innanríkisráðuneytinu, 15. nóvember 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica