1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
a) |
Á eftir setningunni: "Efst skal vera áletrunin "Landhelgisgæslan" og síðan með smækkuðu letri "Icelandic Coast Guard"" í 3. mgr. 2. gr., kemur ný setning: Þá kemur áletrun með rauðum stöfum: "Handhafi lögregluvalds", og þar fyrir neðan til hægri með svörtu smáu letri: "skv. lögum um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52/2006." |
|
b) |
Í stað orðsins "gráa" í lokamálslið 4. mgr. 2. gr. kemur: bláa. |
|
c) |
Í stað orðsins "3 mm" í lokamálslið 4. mgr. 2. gr. kemur: 1 sm. |
2. gr.
b. liður 2. mgr. 3. gr. fellur brott. c. liður 2. mgr. 3. gr. verður b. liður.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 21. gr. laga um Landhelgisgæslu Íslands nr. 52 14. júní 2006 með síðari breytingum öðlast gildi þegar í stað.
Innanríkisráðuneytinu, 10. febrúar 2012.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.