Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

268/2001

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna nr. 148 1. mars 2000, með síðari breytingu.

1. gr.

2. mgr. 5. gr., sbr. reglugerð nr. 238 31. mars 2000, orðist svo:
Hver hlutamiði ber áprentað númer frá 1 - 80.000, bókstaf flokkaraðar, flokksnúmer frá 1 - 12, verð miðans, síðasta söludag, dráttardaga og innlausnarfrest vinninga. Á miðann skal prenta eiginhandarundirskrift forstjóra happdrættisins og á honum skal vera undirskrift og eiginhandarstimpill söluumboðsmanns. Ef menn kaupa hlutamiða, sem gildir fyrir alla drætti á sama ári (ársmiða), skal það koma fram á miðanum. Draga skal vikulega og eigi sjaldnar en fjórum sinnum í mánuði í hverjum flokki.

2. gr.

7. gr., sbr. reglugerð nr. 238 31. mars 2000, orðist svo:
Verð hlutamiða í hvorri flokkaröð skal vera 9.600 kr. ef keyptur er miði sem gildir í öllum 12 flokkum happdrættisársins sem er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.

Verð miða fyrir hvern flokk er 800 kr.

Sé óskað að kaupa hlutamiða eftir að dregið hefur verið í fyrsta flokki happdrættisins eða síðar skal greiða fyrir andvirði hlutamiða í þeim flokki sem næst á að draga í. Sé óskað að kaupa hlutamiða, sem gilda á fyrir alla útdrætti sem eftir eru á happdrættisárinu, skal greiða fyrir þá flokka sem eftir er að draga í.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16 13. apríl 1973, sbr. lög nr. 53 25. maí 1976, lög nr. 24 26. mars 1987 og lög nr. 21 17. apríl 1997, um breyting á þeim lögum, öðlast gildi 20. apríl 2001.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 21. mars 2001.

F. h. r.
Björn Friðfinnsson.

Fanney Óskarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.