Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

936/2000

Reglugerð um breytingu á reglugerð um vöruhappdrætti Sambands íslenskra berklasjúklinga, nr. 372 25. október 1976, með síðari breytingum. - Brottfallin

936/2000

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um vöruhappdrætti Sambands íslenskra
berklasjúklinga, nr. 372 25. október 1976, með síðari breytingum.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar verði:
Reglugerð um vöruhappdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga.


2. gr.

13. gr., sbr. reglugerð nr. 708/1997, breytist þannig:
a. Við greinina bætist tvær nýjar málsgreinar sem verði 3. og 4. mgr., svohljóðandi:
Stjórn happdrættisins er heimilt að ákveða að í einum flokki hvers happdrættisárs sé dreginn sérstaklega út tiltekinn fjöldi vinninga samkvæmt vinningaskrá með vali tveggja stafa talna.

Valið fer fram með notkun átta hólfa stokks og er sú tala, sem fram kemur og síðustu tveir stafir mynda, skráð. Lesið skal frá þeim enda stokksins sem fjær er snúningshnúð. Val er endurtekið þar til tilskilinn fjöldi talna hefur fengist. Tölurnar verða hluti af vinningaskrá, en þær vísa til síðustu tveggja tölustafa í hverju miðanúmeri. Þau miðanúmer sem þannig er vísað til eru vinningsnúmer.

b. 3. mgr. verði 5. mgr.


3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um vöruhappdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, nr. 18 22. apríl 1959, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2001.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 8. desember 2000.

F. h. r.
Björn Friðfinnsson.
Fanney Óskarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica