Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

532/1995

Reglugerð um breytingu á reglugerð um starfsþjálfun stjórnenda ökutækja sem flytja tiltekinn hættulegan farm, nr. 139 3. mars 1995. - Brottfallin

Reglugerð um breytingu á reglugerð um starfsþjálfun stjórnenda ökutækja sem flytja tiltekinn hættulegan farm, nr. 139 3. mars 1995.

1. gr.

Í stað "innan 6 mánaða frá gildistöku reglugerðarinnar" í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða komi: eigi síðar en 31. desember 1995.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 2. mgr. 50. gr. og 5. mgr. 73. gr. umferðarlaga, nr. 50 30. mars 1987, sbr. lög nr. 44 7. maí 1993, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 29. september 1995.
F. h. r.
Ólafur W. Stefánsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica