Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

550/1991

Reglugerð um breytingu á reglugerð um merki á skólabifreiðum, nr. 279 29. maí 1989.

1. gr.

Á eftir 1. mgr. 1. gr. komi ný málsgrein sem orðist svo:

Lögreglustjóri getur veitt undanþágu frá notkun merkis fyrir skólabifreið, ef akstursleiðir bifreiðar eru þannig að farþegum er einungis hleypt inn eða út utan alfaravegar og skólanefnd mælir með.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 60. gr. umferðarlaga, nr. 50 30.mars 1987, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 21. nóvember 1991.

Þorsteinn Pálsson

Ólafur W. Stefánsson

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.