Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

1037/2008

Reglugerð um breyting á reglugerð um héraðslögreglumenn nr. 283/1997 með síðari breytingu.

1. gr.

2. gr. orðast svo:

Lögreglustjóra í öðrum umdæmum en í umdæmum lögreglustjóranna á Akureyri, Akra­nesi, Borgarnesi, Eskifirði, Vestfjörðum á Ísafirði, Selfossi, Suðurnesjum og á höfuð­borgarsvæðinu er heimilt að ráða allt að 8 héraðslögreglumenn til starfa í umdæmi sínu, að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra.

Lögreglustjórunum á Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Eskifirði, Vestfjörðum á Ísafirði og Selfossi er heimilt að ráða allt að 16 héraðslögreglumenn, lögreglustjóranum á Suður­nesjum er heimilt að ráða allt að 40 héraðslögreglumenn og lögreglustjóranum á höfuð­borgarsvæðinu er heimilt að ráða allt að 80 héraðslögreglumenn að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 10. gr. lögreglulaga, nr. 90 13. júní 1996 með áorðnum breytingum, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 12. nóvember 2008.

Björn Bjarnason.

Þórunn J. Hafstein.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica