Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

1102/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Lögregluskóla ríkisins, nr. 490/1997.

1. gr.

Í stað orðanna "í a.m.k. átta mánuði" í 1. ml. 1. mgr. 8. gr. kemur: í a.m.k. fjóra mánuði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 39. gr. lögreglulaga nr. 90, 13. júní 1996, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 3. desember 2008.

Björn Bjarnason.

Halla Bergþóra Björnsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica