Á eftir orðunum "frambjóðanda á" í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar, kemur: þeim.
2. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í kosningum til Alþingis, við forsetakjör og í þjóðaratkvæðagreiðslu skal birta auglýsinguna á vef landskjörstjórnar og í sveitarstjórnarkosningum á vef viðkomandi sveitarfélags.
Á eftir orðinu aðföng í 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar, kemur: og aðstaða; og í stað orðanna "ílát til blöndunar atkvæða" í sömu málsgrein kemur: að unnt sé að blanda atkvæðum.
Lokamálsliður 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
Við 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar bætist: Sé um að ræða samnýttan atkvæðakassa, sbr. 1. mgr. 76. gr., skal kjörstjóri rjúfa innsigli hans og afhenda atkvæðin flokkuð.
Orðin "í hæfilega stórt ílát" í 15. gr. reglugerðarinnar falla brott.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglugerðarinnar:
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar:
Við lokamálslið 4. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar bætist: en umboðsmenn eiga rétt á að fá ágreininginn bókaðan í gerðabók yfirkjörstjórnar.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. mgr. 81. gr., 4. mgr. 99. gr. og 6. mgr. 105. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. apríl 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild - Útgáfudagur: 22. apríl 2026