Í stað orðanna "rafræn skilríki" í 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar, kemur: rafræna auðkenningu.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:
Á eftir orðunum "skal landskjörstjórn" í 4. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar, kemur: eða yfirkjörstjórn sveitarfélags; og við málsgreinina bætist: eigi síðar en sex mánuðum eftir kjördag.
Við 2. málsl. 21. gr. reglugerðarinnar bætist: í forsetakjöri og kosningum til Alþingis en til yfirkjörstjórnar viðkomandi sveitarfélags í kosningum til sveitarstjórna.
2. málsl. d-liðar 2. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar fellur brott; og við stafliðinn bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé lögheimili í fjölkjarna sveitarfélagi er heimilt að tilgreina heiti þess byggðakjarna sem það stendur í.
2. málsl. d-liðar 2. mgr. 27. gr. reglugerðarinnar fellur brott; og við stafliðinn bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé lögheimili í fjölkjarna sveitarfélagi er heimilt að tilgreina heiti þess byggðakjarna sem það stendur í.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. og 2. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 47. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 23. mars 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026