Í stað orðanna "Um auglýsingu og tilkynningu til umboðsmanna fer skv. 3. mgr. 5. gr." í 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar, kemur: Eigi síðar en tveimur dögum fyrir kjördag skal kjörstjóri birta auglýsingu um atkvæðagreiðslurnar, en að öðru leyti fer um auglýsingu og tilkynningu til umboðsmanna skv. 3. mgr. 5. gr.
Í stað orðanna "Um auglýsingu og tilkynningu til umboðsmanna fer skv. 3. mgr. 5. gr." í 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, kemur: Eigi síðar en tveimur dögum fyrir kjördag skal kjörstjóri birta auglýsingu um atkvæðagreiðslurnar, en að öðru leyti fer um auglýsingu og tilkynningu til umboðsmanna skv. 3. mgr. 5. gr.
Í stað orðanna "landskjörstjórn birtir á vef sínum" í 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar, kemur: birt er á vef sýslumanna og landskjörstjórnar; og á eftir orðinu "borist" í 3. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar, kemur: hlutaðeigandi.
Í stað orðanna "er kjörstjóra heimilt að" í 3. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar, kemur: skal kjörstjóri.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 69. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og tekur þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 23. mars 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild - Útgáfudagur: 26. mars 2026