Dómsmálaráðuneyti

998/2025

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 510/2018 um sprengiefni og forefni til sprengiefnagerðar.

1. gr.

42. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 50. gr. reglugerðarinnar:

  1. c-liður 1. mgr. breytist og orðast svo:
    1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1148 frá 20. júní 2019 um markaðssetningu og notkun forefna sprengiefna. Vísað er til reglugerðarinnar í II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2014, þann 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, 25. apríl 2024, bls. 725-744.
  2. Á eftir c-lið 1. mgr. koma þrír stafliðir, d-, e- og f-liður, svohljóðandi:
    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/214 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 98/2013 að því er varðar að bæta áldufti í skrána yfir forefni sprengiefna í II. viðauka, sem vísað er til í tölulið 12zzq, XV. kafla og tölulið 6 í XXIX. kafla viðauka II við EES-samninginn eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar 31. maí 2018. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 28. júní 2018, bls. 139-140.
    2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/215 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 98/2013 að því er varðar að bæta sexvötnuðu magnesíumnítrati í skrána yfir forefni sprengiefna í II. viðauka, sem vísað er til í tölulið 12zzq, XV. kafla og tölulið 6 í XXIX. kafla viðauka II við EES-samninginn eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar 31. maí 2018. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 28. júní 2018, bls. 141-142.
    3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/216 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 98/2013 að því er varðar að bæta magnesíumdufti í skrána yfir forefni sprengiefna í II. viðauka, sem vísað er til í tölulið 12zzq, XV. kafla og tölulið 6 í XXIX. kafla viðauka II við EES-samninginn eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar 31. maí 2018. Framselda reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42 frá 28. júní 2018, bls. 143-144.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 27. gr. d., 2. mgr. 28. gr. og 40. gr. vopnalaga, nr. 16/1998, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 15. ágúst 2025.

F. h. r.

Haukur Guðmundsson.

Drífa Kristín Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfudagur: 18. september 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica