Fara beint í efnið

Prentað þann 3. maí 2024

Breytingareglugerð

1241/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga nr. 923/2001 með síðari breytingum.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar, sbr. reglugerð nr. 1010/2018, orðast svo:

Verð ársmiða er 24.000 kr. en endurnýjunarverð í hverjum flokki 2.000 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga nr. 18/1959, öðlast gildi 1. janúar 2023.

Dómsmálaráðuneytinu, 26. október 2022.

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.