Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1599/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir Íslenskar getraunir nr. 166/2016 með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "meiri en helmings" í 3. mgr. kemur: 7 eða fleiri.
  2. 4. mgr. orðast svo: Með hlutkesti er átt við að dregið sé um heimasigur (1), jafntefli (x) eða útisigur (2) með sérstökum hlutum eða einingum. Samtals eru 100 einingar með í útdrættinum. Þær ákvarðast af líkum á heimasigri, jafntefli eða útisigri í viðkomandi leik, þann dag sem opnað er fyrir sölu á getraunaseðlinum. Í þeim tilfellum sem líkur liggja ekki fyrir, ákvarðar Svenska Spel líkurnar.
  3. Í stað orðanna "mun sjá" í 5. mgr. kemur: sér.

2. gr.

3. málsl. 31. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hafi engin tilkynning borist um úrslitin frá þeim aðila sem skipulagði leikinn innan 24 klukkustunda frá því leik lauk, telst honum ekki hafa lokið og getur þátttakandi talið ágiskun sína rétta með vinningsstuðli 1,00.

3. gr.

32. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ef ágiskun í Lengjunni tekur til leiks sem er frestað vegna veðurs eða annarra orsaka, getur þátttakandi talið ágiskun sína rétta með vinningsstuðli 1,00. Ef giskað er á tvo eða fleiri leiki í samsetningu og einum þeirra er frestað, gilda úrslit þeirra leikja sem eftir standa. Ef öllum leikjum í Lengjunni, sem ágiskunin tekur til, er frestað, fellur getraunin niður og þátttökugjald er endurgreitt.

Íslenskar getraunir hafa heimild til að bíða með að setja úrslit á leik ef fyrirsjáanlegt er að hann verði leikinn innan 48 klukkustunda frá upphaflegum leiktíma. Í þeim tilfellum gildir ágiskun þátttakanda á leikinn.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. gr. laga um getraunir nr. 59/1972, öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 23. desember 2021.

Jón Gunnarsson
innanríkisráðherra.

Berglind Bára Sigurjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.