Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

594/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir talnagetraunir Íslenskrar getspár nr. 1170/2012 með síðari breytingum.

1. gr.

Hvarvetna þar sem heitið "Víkingalottó" kemur fyrir í reglugerðinni kemur í viðeigandi beygingarmynd: Vikinglottó.

2. gr.

Hvarvetna þar sem "innanríkisráðuneyti" kemur fyrir í reglugerðinni kemur í viðeigandi beygingarmynd: dómsmálaráðuneyti.

3. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Félagið starfrækir talnagetraunir (lottó) undir heitunum Lottó 5/40, Jóker, Vikinglottó (Lottó 6/48 + 1/5 og EuroJackpot (5/50 + 2/10).

Vikinglottó er starfrækt í samvinnu við eftirgreind talnagetraunafyrirtæki: AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY Veikkaus ab, Finnlandi, Danske Spil AS, Danmörku, AS Eesti Loto, Eistlandi, OlifejaLotto, Litháen, Latvia Loto, Lettlandi, Loterija Slovenije, Slóveníu og Loterie Nationale, Belgíu.

EuroJackpot er starfrækt í samvinnu við eftirgreind fyrirtæki:AB Svenska Spel, Svíþjóð, Norsk Tipping A/S, Noregi, OY Veikkaus ab, Finnlandi, Danske Spil AS, Danmörku, AS Eesti Loto, Eistlandi, OlifejaLotto, Litháen, Latvia Loto, Lettlandi, Bremer Toto und Lotto GmbH, Deutsche Klassenlotterie Berlin, Land Brandenburg Lotto GmbH, Lotterie Treuhandgesellschaft mbH Hessen, Lotterie-Treuhandgesellschaft mbH Thüringen, Lotto Hamburg GmbH, Lotto Rheinland-Pfalz GmbH, Lotto-Toto GmbH Sachsen-Anhalt, NordwestLotto Schleswig-Holstein GmbH & Co.KG, Saarland-Sporttoto GmbH, Sächsische Lotto-GmbH, Staatliche Lotterieverwaltung in Bayern, StaatlicheToto-Lotto GmbH Baden-Württemberg, Toto-Lotto Niedersachsen GmbH, Verwaltungsgesellschaft Lotto und Toto in Mecklenburg-Vorpommern mbH, Westdeutsche Lotterie GmbH & Co.OHG, Þýskalandi, De Lotto, Hollandi, Loterija Slovenije, Slóveníu, Sisal, Ítalíu, Tipos National Lottery, Slóvakíu, Sazka Saskova Kancelar a.s., Tékklandi, Szerencsejatec Zrt., Ungverjalandi, Once, Spáni, Totalizator Sportowy, Póllandi og Hrvatska Lutrija, Króatíu.

4. gr.

Í stað "1-8" í 3. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 6. gr. og 6. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 1-5.

5. gr.

Í stað orðanna "í Víkingalottó kr. 100" í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: í Vikinglottó kr. 110.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. mgr. orðast svo:
    Útdráttur vinninga í Lottó 5/40 fer fram opinberlega á laugardegi eða samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar Íslenskrar getspár að viðstöddum fulltrúa hennar og skipuðum eftirlitsmanni samkvæmt 1. mgr. 16. gr. Útdráttur vinninga fer þannig fram að í þar til gerðri útdráttarvél eru valdar fimm vinningstölur, aðaltölur, af tölunum 1-40. Því næst er valin bónustala af þeim tölum sem þá eru eftir. Verði bilun í þar til gerðri vél, sem velur vinningstölur og síðan bónustölu, skal dregið úr þar til gerðum poka með 40 kúlum með tölunum 1-40, fyrst fimm vinningstölur og síðan bónustölu, af þeim tölum sem þá eru eftir. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í pokanum séu kúlur merktar tölunum frá 1-40.
  2. 4. mgr. orðast svo:
    Samtímis útdrætti í Lottó 5/40 fer fram útdráttur í Jóker tengdum þeirri talnagetraun, með Jóker útdráttarvél sem varðveitt er í innsigluðum kassa, með eftirfarandi hætti. Útdráttur fer þannig fram að fimm hjól, hvert með tölunum 0-9, eru sett í gang og við stöðvun hjólanna koma fram hinar fimm útdregnu tölur. Tölurnar, í þeirri röð sem þær birtast, mynda Jókertölurnar. Verði bilun í einu eða fleirum af hinum fimm hjólum með tölunum 0-9 skal dregið úr einum eða allt að fimm, eftir því sem við á, þar til gerðum poka þar sem kúlur eru merktar tölunum 0-9. Áður en slíkur útdráttur fer fram skal gengið úr skugga um að í pokanum séu kúlurnar merktar tölunum 0-9.
  3. Orðin "á myndbandsspólu" í 7. og 9. mgr. falla brott.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað "0,110 evrur" í a-lið 1. mgr. kemur: 0,130 evrur.
  2. Í stað "0,018 evrur" í b-lið 1. mgr. kemur: 0,013 evrur.
  3. Í stað "0,032 evrur" í c-lið 1. mgr. kemur: 0,042 evrur.
  4. Í stað "35 milljónir" í a- og b-lið 2. mgr. og þrívegis í 6. mgr. kemur: 25 milljónir.

8. gr.

3. tölul. 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Vikinglottó:

    Sex réttar aðaltölur og Víkingatala 1:61.357.560
    Sex réttar aðaltölur 1:12.271.512
    Fimm réttar aðaltölur og Víkingatala 1:243.482
    Fimm réttar aðaltölur 1:48.696
    Fjórar réttar aðaltölur 1:950
    Þrjár réttar aðaltölur 1:53

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um talnagetraunir nr. 26/1986, öðlast gildi 3. júní 2021.

Dómsmálaráðuneytinu, 20. maí 2021.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Bryndís Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.