Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 13. okt. 2020

781/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Útlendingum, sem eru hvorki EES/EFTA-borgarar né ríkisborgarar Andorra, Mónakó, San Marínó eða Vatíkansins, er óheimilt að koma til landsins þrátt fyrir að þeir fullnægi skilyrðum sem fram koma í 5. gr. reglugerðarinnar og 106. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa gilt dvalarleyfi eða annars konar dvalar- eða búseturétt hér á landi, í öðru EES/EFTA-ríki eða í Andorra, Mónakó, San Marínó eða Vatíkaninu og aðstandendur þeirra, líkt og þeir eru skilgreindir í lögum um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um aðstandendur íslenskra ríkisborgara, EES/EFTA-borgara eða ríkisborgara Andorra, Mónakó, San Marínó eða Vatíkansins, líkt og þeir eru skilgreindir í lögum um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem eru í nánu parsambandi, sem staðið hefur um lengri tíma, með einstaklingi sem er löglega búsettur hér á landi.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa sannanlega búsetu í einu af þeim ríkjum sem upp eru talin í viðauka 4 við reglugerð þessa og eru að koma til landsins frá viðkomandi ríki.

Ákvæði 1. mgr. á ekki heldur við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Diplómata, starfsmenn alþjóðastofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð.
  7. Námsmenn.
  8. Einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna starfa sem teljast efnahagslega mikilvæg og störf þeirra eru þess eðlis að þau geta ekki verið framkvæmd síðar eða erlendis.

2. gr.

Í stað viðauka 4 kemur nýr viðauki 4 sem birtur er með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 768/2020.

Dómsmálaráðuneytinu, 10. ágúst 2020.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.