1. gr.
Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Til og með 30. júní 2020 er útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins óháð því hvort þeir uppfylli skilyrði 5. gr., auk annarra skilyrða sem fram koma í 106. gr. laga um útlendinga.
Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa gilt dvalarleyfi eða annars konar dvalar- eða búseturétt hér á landi eða í öðru EES- eða EFTA-ríki. Ákvæðið á heldur ekki við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast hún þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 12. júní 2020.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Haukur Guðmundsson.