Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

402/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir Íslenskar getraunir nr. 166/2016 með síðari breytingum.

1. gr.

16. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Verð hverrar getraunaraðar skal vera 14 kr.

2. gr.

Á eftir 2. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar kemur ný mgr. svohljóðandi:

Ef ákvarða þarf með hlutkesti úrslit meira en helmings leikja á getraunaseðli ógildist getraunaseðillinn og skal þátttökugjaldið þá endurgreitt.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um getraunir nr. 59/1972. Ákvæði 2. gr. reglugerðarinnar öðlast þegar gildi og 1. gr. reglugerðarinnar öðlast gildi 18. maí 2020.

Dómsmálaráðuneytinu, 28. apríl 2020.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.